Barnaníðingurinn hefur ekki komið inn á fósturheimilið í tvö ár 12. júní 2012 10:48 Myndin er úr safni. „
Við höfum kallað eftir upplýsingum frá fósturheimilinu og barnaverndarnefndum sem eiga hlut að máli, en eftir því sem við best vitum hefur maðurinn ekki komið þangað eftir sumarið 2010," segir Heiða Björg Pálmadóttir, lögfræðingur Barnaverndarstofu, um stöðu fósturheimilisins sem dæmdur barnaníðingur heimsótti í fyrrasumar. Maðurinn er bróðir fósturföðurins sem hleypti manninum inn á heimilið en níðingurinn var dæmdur árið 1997 fyrir að misnota sex barnungar stúlkur. Þá hlaut hann fjögurra ára fangelsi, sem var þyngsti dómurinn sem þá hafði fallið fyrir kynferðislega misnotkun á börnum. Samtök vistheimilabarna gagnrýna fósturforeldrana harðlega fyrir dómgreindarleysi í ályktun sem samtökin sendu frá sér í dag. Þá fordæma samtökin einnig eftirlitsleysi barnaverndaryfirvaldanna á þessu fósturheimili og krefjast þess að slík vistheimili verði undir smásjá héðan í frá. Heiða Björk segir að það hafi komið í ljós sumarið 2010 að maðurinn var á heimilinu. Um haustið var haft samband við fósturforeldrana og þeim tilmælum beint til þeirra að maðurinn kæmi ekki aftur inn á heimilið. Við þeim tilmælum var orðið að sögn Heiðu Bjarkar. Um eftirlitið segir Heiða Björk að tvær eftirlitsstofnanir skoða heimilið reglulega auk þess sem skólayfirvöld vinni með barnaverndarnefndum þegar um fósturbörn er að ræða. Aðspurð hvort það sé ekki ráð að fjarlægja barn af fósturheimili, komi í ljós að fósturforeldrar hafi sýnt af sér slíkt dómgreindarleysi, svarar Heiða því til að það þurfi afar ríkar ástæður til þess að fjarlægja fósturbarn af heimili, enda afar íþyngjandi fyrir þau. Hún segir málið til skoðunar. Aðspurð hvort það sé rætt við börnin sem áttu samskipti við manninn, og þau spurð úti samskiptin, svara Heiða því að hún vit ekki betur en svo að það hafi verið rætt við alla þá sem komu að málinu. En hún getur ekki tjáð sig um einstök tilfelli.
Tengdar fréttir Samtök vistheimilabarna fordæma heimsóknir barnaníðings á fósturheimili "Okkur er mjög brugðið að sjá þetta,“ segir Víglundur Þór Víglundsson, formaður samtaka vistheimilabarna, en sjálfur varð hann fyrir grimmu ofbeldi á Breiðavík þegar hann dvaldi þar sem barn. Samtök vistheimilabarna sendu frá sér ályktun seint í gærkvöldi þar sem þau fordæmdu ákvörðun fósturheimilis úti á landi sem leyfið barnaníðingi að umgangast börn sem þar voru í fóstri. 12. júní 2012 10:05 Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Fleiri fréttir Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Sjá meira
Samtök vistheimilabarna fordæma heimsóknir barnaníðings á fósturheimili "Okkur er mjög brugðið að sjá þetta,“ segir Víglundur Þór Víglundsson, formaður samtaka vistheimilabarna, en sjálfur varð hann fyrir grimmu ofbeldi á Breiðavík þegar hann dvaldi þar sem barn. Samtök vistheimilabarna sendu frá sér ályktun seint í gærkvöldi þar sem þau fordæmdu ákvörðun fósturheimilis úti á landi sem leyfið barnaníðingi að umgangast börn sem þar voru í fóstri. 12. júní 2012 10:05