Innlent

Segir Selfossvirkjun óraunhæfa

Vegagerðin er með áform um brúargerð þar sem heimamenn hafa velt fyrir sér virkjunarkostum.
Vegagerðin er með áform um brúargerð þar sem heimamenn hafa velt fyrir sér virkjunarkostum.
Framkvæmda- og veitustjórn Árborgar segir hugmyndir um virkjun við Efri Laugardælaeyju sýna að ekki hafi verið um raunhæfar áætlanir að ræða hvorki hvað varðar arðsemi né tæknilega útfærslu. Þetta sýni yfirferð Verkfræðistofu Suðurlands.

„Framkvæmda- og veitustjórn leggst eindregið gegn því að farið verði í virkjun á þessum stað,“ segir í bókun sem áheyrnarfulltrúi Framsóknarflokks í bæjarráði gerði að umfjöllunarefni í gær.

„Loksins hefur meirihluti Sjálfstæðismanna áttað sig á því hversu arfavitlaus sú hugmynd að virkja Ölfusá við Selfoss var hjá þeim,“ bókaði Helgi S. Haraldsson. Bætti Helgi við að ekki væri hægt að skilja framkvæmda- og veitustjórn öðruvísi en að allar hugmyndir um virkjunina væru slegnar af.

„Vegna þessa óska ég eftir því að lagðar verði fram upplýsingar um sundurliðaðan kostnað við alla þá vinnu sem fram hefur farið vegna hugmynda um Selfossvirkjun,“ bókaði Helgi og lagði til að Vegagerðinni yrði formlega tilkynnt að allar hugmyndir um Selfossvirkjun hafi verið slegnar af borðinu. Sagði hann þess þurfa vegna yfirlýsingar á sínum tíma um skoðun á hugsanlegum samlegðaráhrifum virkjunar og fyrirhuguðu vega- og brúarstæði nýrrar brúar yfir Ölfusá.- gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×