Innlent

Stálu díselolíu fyrir 65 þúsund

Alls 260 lítrum af díselolíu var stolið af tveimur flutningabílum á Suðurnesjum.

Að sögn lögreglu var olíunni stolið um nótt en á vettvangi var lítill olíubrúsi og slanga sem þjófarnir notuðu við þjófnaðinn. Miðað við að lítrinn af díselolíu kosti 248 krónur, eins og algengast er í dag, þá stálu þjófarnir olíu fyrir tæpar 65 þúsund krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×