Innlent

Ölvaðir ökumenn klesstu á og ultu

Fjórir ökumenn voru teknir í gærkvöldi og í nótt grunaðir um ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu. Einn þeirra var á ferð í austurbænum í Reykjavík þegar hann lenti í árekstri.

Hann var færður á lögreglustöð eftir áreksturinn þar sem kom í ljós að hann væri líklega ölvaður. Voru því tekin sýni úr manninum og fékk hann svo að dúsa í fangaklefa yfir nóttina. Hvorug bifreiðin skemmdist mikið og voru báðar ökufærar á eftir.

Þá velti einn ölvaður ökumaður bílnum sínum um klukkan fjögur í nótt þar sem hann var á ferð í iðnvogunum í austurbænum í Reykjavík. Maðurinn komst sjálfur út úr flakinu á eftir og var ekki illa slasaður. Hann var því næst færður á lögreglustöð þar sem hann fær að sofa úr sér þar eins og sá fyrri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×