Þrír Íslendingar slógu í gegn í karókí í Berlín 28. maí 2012 22:00 Það er óhætt að segja að söngvararnir hafi slegið í gegn með flutningi sínum.
Þó svo Íslendingar hafi ekki riði feitum hesti frá Euorvison keppninni í ár þá voru þrír dularfullir Íslendingar sem héldu uppi söngheiðri lands og þjóðar í Þýskalandi í gær. Þannig má finna þetta myndband á Youtube af þremur íslenskum strákum sem syngja sívinsælan slagara eftir kónginn sjálfann, Elvis Presley. Í meðfylgjandi myndbandi má sjá félagana taka þátt í fyrirbærinu bearpit karaoke. Það er haldið í Mauerpark í Berlin en á hverjum sunnudegi mæta þrjátíu til fimmtíu þúsund manns til þess að hlýða á áhugasöngvara spreyta sig í karókí. Félagarnir þrír slá hreinlega í gegn með flutningi sínum eins og sjá má á myndbandinu og fagnar fólk ítrekað á meðan þeir syngja lagið. Að lokum eru þeir beðnir um að taka annað, sem þeir afþakka þó pent. Karókí fyrirbærið í almenningsgarðinum er athyglisvert. Þannig skrifar breska blaðið Guardian um málið á heimasíðu sinni. Þar kemur í ljós að það voru nokkrir félagar frá Dublin í Írlandi sem byrjuðu á þessu. Þeir hjóluðu um Berlín árið 2009 og voru þá ávallt með fartölvu ásamt hátölurum og hljóðnema í farteskinu. Þeir reyndu síðan að fá fólk til þess að syngja karókí lög á götum úti. Eitt síðdegið ákváðu þeir að koma við í garðinum til þess að athuga hvort það væri einhver áhugi fyrir uppátækinu. Á innan við mánuði voru þúsundir farnir að mæta á svæðið til þess að hlýða á áhugasöngvara. Þessi undarlega saga gæti þó brátt verið á enda, því borgaryfirvöld í Berlín hafa tekið eftir uppákomunni. Þannig þarf sérstakt leyfi til þess að halda karókí-viðburði, ef svo má kalla. Nú kostar það félagana sem standa á bak við tónleikahaldið 1500 evrur að leyfa fólki að syngja karókí fyrir gesti og gangandi, eða um 250 þúsund krónur, auk þess sem þeir mega aðeins halda 12 slíka tónleika á fyrirfram ákveðnum dögum yfir sumarið. En hvernig sem sú deila fer, þá mega Íslendingarnir eiga það, að þeir koma sínu ágætlega til skila. Hafi einhver upplýsingar um það hverjir íslensku söngvararnir eru þá mega þeir að sjálfsögðu senda okkur línu á frettir@stod2.is.
Menning Mest lesið Íranir ráðast á herstöð Bandaríkjamanna í Katar Erlent Flaug í einkaflugi með Støre Innlent Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Innlent „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Innlent Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Innlent Kona féll í Svöðufoss Innlent Tuttugu og tveir látnir eftir sjálfsmorðsárás í kirkju Erlent Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Innlent Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Innlent Fleiri handteknir í Borgarnesi Innlent Fleiri fréttir „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Árásum á Íran haldið áfram og enn þráttað um veiðigjöld Neita öll sök í Gufunessmálinu Váleg þróun að ríki telji sig ekki þurfa að færa rök fyrir því að beita hervaldi Hyggst setja RÚV „talsverðar skorður“ í þágu einkarekinna fjölmiðla Handtekinn fyrir að sveifla hamri Sjálfboðaliðar að bugast: Mikil örvænting meðal gæludýraeigenda Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Álftapar með fjóra unga við Hótel Rangá vekur athygli Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Enn annað innbrot í Laugardalnum Ráðherra um árásir, lögblindur sjúkraþjálfari og álftarungar á hóteli Hvalfjarðargöng eru lokuð Sjá meira