Vilja minna veitt af makrílnum 29. september 2012 09:00 ICES leggur til fimmtán prósent minni veiði á makríl árið 2013. fréttablaðið/óskar
Alþjóðahafrannsóknaráðið ICES, leggur til 15,2% samdrátt í veiðum á makríl árið 2013, umtalsverða aukningu í veiðum á kolmunna og mikinn samdrátt í veiðum á norsk-íslenskri síld. Þetta kemur fram í ráðgjöf stofnunarinnar sem birt var í gær. „Ég tel að endurskoða þurfi mat Alþjóðahafrannsóknaráðsins á makrílstofninum og taka tillit til þess að um árabil fölsuðu ýmsar Evrópusambandsþjóðir og Norðmenn aflatölur gróflega. Það hefur mikil áhrif á stofnmatið og ég tel óhætt að fullyrða að um verulegt vanmat sé að ræða,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, á vef sambandsins. Lagt er til að makrílveiðar verði á bilinu 497 til 542 þúsund tonn árið 2013 á móti 586 til 639 þúsund tonnum sem ráðlögð voru í fyrra. Hins vegar er lögð til 64,4% aukning í veiðum á kolmunna eða úr 391 þúsund tonnum í 643 þúsund tonn árið 2013. Friðrik segir að kolmunnastofninn sé að ná sér vel á strik en því miður hafi nýliðun í norsk-íslenska síldarstofninum verið mjög slök á síðustu árum og hann á hraðri niðurleið. Ef stuðst verður við samninga um nýtingaráætlun verður heimilt að veiða 619 þúsund tonn af norsk-íslenskri síld árið 2013, sem er 25,7% samdráttur frá því í fyrra þegar ráðgjöfin hljóðaði upp á 833 þúsund tonn. - shá
Mest lesið „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Erlent Fleiri fréttir „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Sjá meira