Innra vegakerfi tilfinninganna Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 29. september 2012 21:30 „Mér finnst ég betri myndlistarskoðandi en áður, vita meira um stefnur og stíla og hvað menn ætluðu sér,“ segir Jóhann sem leikur listmálarann Rothko í Borgarleikhúsinu. fréttablaðið/anton
Jóhann Sigurðarson leikari tekst nú á við eitt af sínum stóru hlutverkum er hann túlkar listmálarann Mark Rothko sem nú er einn dýrasti málari seinni tíma en bjó við fátækt framan af ævinni. Gunnþóra Gunnarsdóttir heimsótti Jóhann á Arnarnesið og komst að því að hann ólst upp hjá einstæðri fjögurra barna móður. Báðir hlutu menningarlegt uppeldi þrátt fyrir bág kjör. „Fyrst man ég eftir mér á Hamraendum í Borgarfirði þar sem foreldar mínir, Guðrún Birna Hannesdóttir og Sigurður Sigurðsson, bjuggu. Þau skildu þegar ég var fimm ára og mamma flutti í bæinn með okkur systkinin, Sigrúnu, mig, Ólöfu og Þorstein Gauta sem var á fyrsta ári. Þetta var 1960 og þá voru margir sem ráðlögðu henni hreinlega að gefa börnin því hún gæti ekki alið önn fyrir okkur. Næsta kynslóð á undan hafði oft orðið að bregða á það ráð. Afi minn í föðurætt var einn af ellefu systkinum og var settur í fóstur á næsta bæ, það átti að sækja hann vorið eftir en hann var aldrei sóttur. Kannski varð það honum til lífs. Hin börnin dóu flest ung." Þannig segist Jóhanni Sigurðarsyni leikara frá þegar hann er beðinn að lýsa ævi sinni frá byrjun. Lífið hefur ekki alltaf farið um hann mjúkum höndum frekar en rússneska listmálarann Rothko sem Jóhann leikur í verkinu Rautt í Borgarleikhúsinu. Sá bjó í gettói um tíma eftir að hann kom til Bandaríkjanna tíu ára gamall með öðrum innflytjendum en er nú dýrasti málari nútímalistasögu. Jóhann gefur ekkert fyrir samlíkingu. „Þetta slampaðist allt hjá okkur. Við bjuggum í Laugarnesinu og við krakkarnir vorum sendir í sveit á sumrin eins og títt var þá. Ég var í sveit meira og minna til sautján ára aldurs, síðustu þrjú sumrin kaupamaður á Sandlæk í Gnúpverjahreppi. Sjálfsagt munaði litlu að ég yrði bóndi. Það var farið að hvarfla að mér að líta í kringum mig eftir heimasætu og jörð. Fór líka að Hvanneyri að kynna mér aðstæður í bændaskólanum." Varstu annars alltaf í skóla í borginni? „Nei. Ég var í skóla í Varmahlíð í Skagafirði þegar ég var níu ára. Mamma var að kenna á Löngumýri og ég var á bæ sem heitir Krossanes. Gauti átti að vera þar líka en hann strauk til mömmu yfir skurði og girðingar, fimm ára. Síðar var ég einn vetur í Ljósavatnsskóla og annan á Laugarvatni. Það var mikið flakk á okkur eldri börnunum en mamma var dugleg og beitti öllum brögðum til að láta þetta ganga. Fór í tónlistarskóla á fertugsaldri og kennir enn á píanó." Hafðir þú ekkert samband við föður þinn? „Jú, jú. En stopult. Hann fór til sjós tveimur árum eftir að við fluttum og var þar meira og minna í 25 ár, oft langdvölum á togurum úti í hafi. Einhvern tíma var hann þrettán mánuði í burtu. Þá veiddu þeir við Grænland og sigldu með aflann til Þýskalands. Menn misstu allt tímaskyn á þessu. Pabbi hringdi kannski í mars og óskaði okkur gleðilegra jóla." Leiklistin breytti lífinu Hvaðan koma þér leiklistarhæfileikarnir? „Það er erfitt að festa fingur á því. Mamma var í leiklistarskóla hjá Lárusi Pálssyni einn vetur áður en hún fór í barneignir og búskap. Pabbi var liðtækur líka bæði í leik og söng í sveitinni og föðuramma mín var músíkölsk þannig að þræðirnir liggja víða." Jóhann útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands vorið 1981 ásamt Sigrúnu Eddu, Karli Ágústi, Guðmundi Ólafs og fleirum sem síðan hafa gert garðinn frægan. „Það var rosalega gaman í leiklistarskólanum og mikil upplifun að komast í þann heim, breytti alveg lífi mínu," rifjar hann upp. „Kjartan Ragnarsson kom á generalprufu á Íslandsklukkunni sem var útskriftarsýning og hringdi í mig daginn eftir. Þá var hann að skrifa leikrit sem hann bauð mér aðalhlutverk í. Það hét Jói og var sýnt 150-160 sinnum, var tvö leikár í Iðnó og farið með það leikför um landið. Þannig byrjaði ferillinn. Ég var hjá Leikfélaginu fyrstu fjögur árin, var svo lausráðinn í þrjú ár en datt inn í verkefni í Þjóðleikhúsinu 1986 og var þar óslitið í 20 ár. Upp á síðkastið hef ég verið í Borgaleikhúsinu, ráðinn til eins árs í senn. Þetta er alltaf spurning um hvaða verk eru í gangi." Á Þjóðleikhússárunum kveðst Jóhann hafa átt rétt á ársleyfi frá störfum og tekið það á Ítalíu. „Ég átti eftir að dvelja erlendis. Guðrún kona mín gat fengið leyfi og strákarnir okkar voru ekki byrjaðir í skóla svo þetta var kjörið tækifæri. Í leiðinni sótti ég söngtíma hjá kennara sem Kristján Jóhannsson útvegaði mér í Brescia," segir hann brosandi og kveðst áður hafa verið mörg ár í tónlistarskóla, lært söng hjá Sigurði Demetz, tónfræðina og allan pakkann. „Það lá ansi vel við, fjölskyldan var í tónlist, mamma að kenna og Gauti fór alla leið. En mig vantaði herslumun. Svo lenti ég í vondu bílslysi 1988 sem setti veröldina á hvolf hjá mér um tíma. Skrokkurinn fór illa og ég var lengi að ná mér á allan hátt." Slysið Það tekur á Jóhann að rifja upp atburðinn sem tók frá honum elskulega eiginkonu og hjó nærri lífi hans. „Við vorum á Skúlagötunni að koma keyrandi heim og ég var við stýrið. Það var bíll fyrir framan okkur sem vék allt í einu upp á gangstétt og á okkur skall annar sem kom úr gagnstæðri átt á ofsahraða. Bílstjórinn var á stolnum bíl, dauðadrukkinn, ljóslaus, próflaus og á öfugum vegarhelmingi. Þegar hann vaknaði daginn eftir í fangageymslunni hélt hann að hann hefði lent í áflogum, mundi ekkert hvað hefði gerst. En það voru 20-25 metrar milli bílanna eftir áreksturinn, höggið var svo mikið. Konan mín dó samstundis, hún hét Anna Jóna og var Jónsdóttir." En að þú skyldir lifa. „Já, ég hef oft velt því fyrir mér af hverju það fór þannig. Ég fór náttúrlega á spítala, fyrst á gjörgæslu því þetta stóð tæpt á tímabili. Þá kynntist ég íslenskri heilbrigðisþjónustu í fyrsta sinn og áttaði mig á hvílíkt öndvegisfólk er þar við aðhlynningu. Svo átti ég marga góða vini og ættingja sem tóku utan um mig." Áttuð þið Anna Jóna börn? „Ekki saman en hún átti einn dreng, Harald Inga Þorleifsson. Hann var að verða pabbi um daginn, er mikill tölvumaður og stórfyrirtæki erlendis var að bjóða honum vinnu þannig að honum vegnar vel sem betur fer." Þú nefndir Guðrúnu og strákana áðan. Segðu okkur frá þeim. „Guðrún Sesselja Arnardóttir, eiginkona mín frá 1992, er hæstaréttarlögmaður í dag en þegar við kynntumst var hún að læra frönsku í háskólanum. Við eigum tvo stráka, Örn Gauta og Jóhann Ólaf sem eru fæddir 1995 og 96 og eru báðir í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. Örn Gauti er hjólabrettamaður og spilar á gítar og Jóhann Ólafur er fótboltamaður. Báðir lærðu svolítið á píanó hjá mömmu og Jóhann Ólafur hélt áfram í tvö ár hjá Gauta bróður en svo tók fótboltinn yfirhöndina. Þetta eru að verða stórir strákar." Gerði litina að galdraverki „Hið eilífa sköpunarverk heldur áfram," er ein meitlaðra setninga Rothkos í leikritinu Rautt sem reynir mikið á Jóhann. Hann er á sviðinu nær allan tímann eins og meðleikarinn Hilmar Guðjónsson sem leikur aðstoðarmanninn Ken. Hvernig undirbýr Jóhann sig undir þau andlegu átök sem þar eiga sér stað? „Ég reyni að fara vel með mig, vera vel úthvíldur og helst ná mér í klukkutíma kríu áður en ég fer niður í leikhús. Þegar þangað kemur les ég allt leikritið yfir. Svo reyni ég að stilla einbeitinguna. Áður er ég búinn að byggja verkið upp innra með mér, allt ferðalagið og hugsanirnar sem búa að baki því sem sagt er. Það þarf að búa til þetta innra vegakerfi tilfinninga og hugsana, í það fer æfingatíminn," segir Jóhann sem kveðst líka hafa þurft að leggjast í talsverðan lestur til að kynnast Rothko. „Það er búið að vera rosalega gaman að komast nær þessum pælingum sem voru í gangi. Mér finnst ég betri myndlistarskoðandi en áður, vita meira um stefnur og stíla og hvað menn ætluðu sér." Vill hann lýsa Rothko fyrir lesendum? „Rotkho hlaut menningarlegt uppeldi og var trúr öllu sem hann gerði. Leikstjórinn okkar, hún Kristín Jóhannesdóttir, hefur staðið fyrir framan verk hans og segir þau vera eins og talað er um í leikritinu. Það sé í þeim hreyfing og birtan komi innan úr myndunum. Þetta tókst Rothko með aðferð sem hann þróaði. Hann gerði litina að galdraverki og setti í þá alls konar leyndarmál sem hann hélt fyrir sig. Ein mynd eftir hann var slegin nú í vor á 10,8 milljarða." Jóhann leikur í Rauðu óslitið næstu fjórar vikurnar, fimm kvöld í viku. Síðan tekur við Vesturportssýningin Bastarðar sem var forsýnd á listahátíð í vor og hefur verið á fjölum í Danmörku og Svíþjóð í sumar en kemur á svið Borgarleikhússins upp úr 20. október. „Ég tek við af dönskum leikara sem hefur leikið í Rejseholdet," segir Jóhann og kímir. „Fram undan eru líka tíu sýningar af Fanný og Alexander og ætli það verði ekki Mary Poppins eftir áramót? Þetta eru ólík verk. Það er kosturinn við þetta starf á Íslandi hvað fjölbreytileikinn er mikill." Önnur áhugamál? „Ég á hesta. Það eru leifar af sveitinni. Hef líka gaman af að veiða og spilaði badminton í tuttugu ár en meiddi mig í löppinni í fyrra og hef tekið pásu í því. Svo á ég fjölskyldu og hef mikið gaman af að snúast kringum fólkið mitt. Það er áhugamál."
Mest lesið Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Innlent Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Innlent „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Innlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Fleiri fréttir Borgarfulltrúi fer ekki aftur fram og hættir í Pírötum Ekki hægt að fullyrða að andlát hafi tengst Covid-19 bólusetningu „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Kynna einn frambjóðanda á dag næstu daga Ekki skrýtið að eitthvað bresti vegna álags á framlínustarfsmenn Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Verkalýðshreyfingin úti á túni með sitt tal? Mál rússnesku fjölskyldunnar: Króatía sé talið öruggt land Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Heiða tekur annað sætið í Reykjavík Meiri hveralykt af vatninu vegna viðhalds og viðgerðar Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Heiða hefur ekki heldur svarað uppstillingarnefnd Helga Kristín gengur til liðs við Miðflokkinn Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Stefnir í hallarekstur og uppsagnir hjá Stígamótum „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Þingfundi ekki frestað vegna handboltans Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Eldur kviknaði í Strætó Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni „Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Ekki fleiri barnaníðsmál í fimmtán ár Eldsvoði, Bjarni Ben og fjölskylduerjur Sjá meira