Átök í lögreglubíl þegar fangi reyndi að yfirgefa bílinn - myndband 6. júlí 2012 14:05
Karlmaður missti stjórn á sér í lögreglubíl skömmu fyrir hádegi í dag. Maðurinn reyndi að yfirgefa bílinn og upphófust þá átök á milli lögreglunnar og mannsins þar sem þeir biðu á gatnamótum við Snorrabraut. Tveir lögreglumenn voru í bílnum auk mannsins, sem var verið að flytja frá lögreglustöðinni í Hafnarfirði. Samkvæmt varðstjóra lögreglunnar í Hafnarfirði var um hefðbundna flutninga að ræða. Maðurinn hafði verið handtekinn í austurhluta Reykjavíkurborgar, fengið að gista til skamms tíma í Hafnarfirði en til stóð að flytja hann í fangageymslur lögreglunnar á Hverfisgötunni. Vegfarandi sem átti leið hjá í morgun tók upp meðfylgjandi myndskeið en þar má sjá þegar fleiri lögreglubílar eru komnir á vettvang til þess að aðstoða lögreglumennina. Enginn slasaðist í átökunum, lögreglumönnunum tókst að yfirbuga manninn áður en aðstoðin barst. Þó er ljóst að töluverð hætta var á ferð, ekki síst í ljósi þess að mikil átök voru í bílnum samkvæmt sjónarvotti sem Vísir ræddi við. Sjónarvotturinn sem tók myndbandið upp sagði í samtali við Vísi að átökin inn í bílnum hefðu verið heiftarleg. Ekki er ljóst hvað manninum í lögreglubílnum gekk til. Lögreglan telur líklegt að hann hafi verið undir áhrifum fíkniefna. Þegar rætt var við Sigurbjörn Víði Eggertsson, yfirlögregluþjón, sagði hann að maðurinn væri núna staddur í fangageymslum lögreglunnar á Hverfisgötu. Spurður hvort það sé þörf á einhverskonar grind til þess að aðskilja farþega í aftursæti frá ökumanni, svaraði Sigurbjörn að slíkt hlyti að vera umhugsunarefni eftir þetta atvik.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Fleiri fréttir „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Sjá meira