Krefst sex mánaða fangelsis yfir Berki LVP og JHH skrifar 22. júní 2012 12:00 Gríðarleg gæsla var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Sækjandi í málinu gegn Berki Birgissyni fer fram á sex mánaða fangelsi fyrir að hafa hrækt á dómara og kallað ókvæðisorðum. Aðalmeðferð í málinu fór fram í morgun og var gríðarleg öryggisgæsla í dómnum. Börkur gekkst í morgun við því að hafa hrækt á skikkju Söndru Baldvinsdóttur dómara í vor. Hann segist jafnframt hafa kallað „tussa" en þeim orðum hafi ekki verið beint að henni. Eins og fréttastofa greindi frá í morgun bar Sandra vitni í málinu í gegnum síma en hún er stödd erlendis. Hún segir að ekki verði um villst að orðunum hafi verið beint gegn henni. Hún segir að Börkur hafi verið ógnandi í dómssal. Gríðarleg öryggisgæsla hefur verið í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun vegna réttarhaldanna. Ekki síst eftir að ókunnur maður í annarlegu ástandi réðst að lögreglumönnum og hugðist færa Berki úlpu við upphaf réttarhaldanna. Málið gegn Berki var upphaflega rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness en vegna hegðunar hans gegn Söndru dómara lýstu allir dómarar í Héraðsdómi Reykjaness sig vanhæfan til að fjalla um það og var því ákveðið að það skyldi fá meðferð í Héraðsdómi Reykjavíkur. Auk ákæru um brot gegn valdstjórninni með því að hafa hrækt á dómara og kallað ókvæðisorðum að henni, er Börkur ákærður fyrir fjölmörg ofbeldisbrot ásamt Annþóri Kristjáni Karlssyni og fleirum. Börkur og Annþór eru að auki grunaðir um að hafa banað samfanga sínum á Litla Hrauni. Aðalmeðferðinni lauk nú klukkan tólf og verður dómur kveðinn upp í næstu viku. Ítarleg umfjöllun um réttarhöldin yfir Berki verður í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.
Tengdar fréttir Dómari segir Börk hafa verið ógnandi "Hann var mjög ógnandi,“ sagði Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjaness um Börk Birgisson. Aðalmeðferð fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag yfir Berki, sem sakaður er um að hafa brotið gegn valdstjórninni þegar hann hrækti á Söndru í vor. Þá var verið að úrskurða að Börkur skyldi sitja af sér eldri dóm eftir að hann hafði, á reynslulausn, verið sakaður um fjölda ofbeldisbrota. 22. júní 2012 10:52 Börkur viðurkennir að hafa hrækt á dómara Börkur Birgisson viðurkennir að hafa hrækt á skikkju dómara í Héraðsdómi Reykjaness á dögunum. Réttað er yfir Berki í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag vegna þessa brots, sem flokkast undir brot gegn valdstjórninni. Dómarar í Reykjanesi lýstu sig vanhæfa til að dæma í málum hans eftir brotið og því var málið flutt til Reykjavíkur. Fréttavefur Morgunblaðsins segir að átök hafi orðið í réttinum í morgun þegar maður undir áhrifum reyndi að koma einhverskonar hlut að Berki þegar hann var í dómnum í fylgd fangavarða. Börkur er sakaður um fjölmörg ofbeldisbrot. Þar á meðal eru hann og Annþór Kristján Karlsson sakaðir um að hafa orðið samfanga sínum á Litla Hrauni að bana. 22. júní 2012 10:29 Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fleiri fréttir Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Sjá meira
Dómari segir Börk hafa verið ógnandi "Hann var mjög ógnandi,“ sagði Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjaness um Börk Birgisson. Aðalmeðferð fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag yfir Berki, sem sakaður er um að hafa brotið gegn valdstjórninni þegar hann hrækti á Söndru í vor. Þá var verið að úrskurða að Börkur skyldi sitja af sér eldri dóm eftir að hann hafði, á reynslulausn, verið sakaður um fjölda ofbeldisbrota. 22. júní 2012 10:52
Börkur viðurkennir að hafa hrækt á dómara Börkur Birgisson viðurkennir að hafa hrækt á skikkju dómara í Héraðsdómi Reykjaness á dögunum. Réttað er yfir Berki í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag vegna þessa brots, sem flokkast undir brot gegn valdstjórninni. Dómarar í Reykjanesi lýstu sig vanhæfa til að dæma í málum hans eftir brotið og því var málið flutt til Reykjavíkur. Fréttavefur Morgunblaðsins segir að átök hafi orðið í réttinum í morgun þegar maður undir áhrifum reyndi að koma einhverskonar hlut að Berki þegar hann var í dómnum í fylgd fangavarða. Börkur er sakaður um fjölmörg ofbeldisbrot. Þar á meðal eru hann og Annþór Kristján Karlsson sakaðir um að hafa orðið samfanga sínum á Litla Hrauni að bana. 22. júní 2012 10:29