Kona á níræðisaldri þungt haldin á spítala SV skrifar 8. desember 2012 08:00 Kona á níræðisaldri varð fyrir strætisvagni og slasaðist alvarlega í Kópavogi í gærmorgun. Fréttablaðið/Hari
Kona á níræðisaldri lá í gærkvöldi þungt haldin á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að hafa orðið fyrir strætisvagni í Kópavogi um níuleytið í gærmorgun. Konan slasaðist mikið og hlaut töluverða áverka. Franz Gunnarsson var farþegi í strætisvagninum þegar slysið varð. „Bílstjórinn snögghemlaði og við fundum högg þegar hann keyrði á konuna. Hann greinilega sá hana ekki, hún var klædd í dökk föt og það var dimmt,“ segir hann. „Ég hringdi á sjúkrabíl og hlúði að konunni þar til hún komst til meðvitundar og þeir mættu á staðinn, en það blæddi annaðhvort úr höfðinu á henni eða munni. Hún hefur fengið högg við að lenda á jörðinni.“ Að sögn Franz var bílstjóranum verulega brugðið, sem og öllum þeim fáu farþegum sem í vagninum voru. „Hann var ekki á mikilli ferð, en náði ekki að hemla alveg niður. Þetta hefði þó getað farið verr. Krökkunum í vagninum var verulega brugðið og ég reyndi að útskýra fyrir þeim hvað sjúkraflutningamennirnir voru að gera,“ segir hann. „Bílstjórinn var í miklu uppnámi. Maður heyrði ópin í honum áður en bíllinn skall á henni, þegar hann var að hemla sá hann í hvað stefndi.“ Konan var að ganga yfir götu við Engihjalla, en þar var ekki gangbraut. Að sögn Franz var mikil umferð á svæðinu og konan hefur greinilega ekki tekið eftir vagninum. Ekki fengust upplýsingar um líðan konunnar í gærkvöldi.
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Fleiri fréttir Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Sjá meira