Átak við móttöku úrgangs 24. desember 2012 06:00 Hafnaraðstaða og umgengni er víðast til fyrirmyndar fréttablaðið/óskar
Umhverfisstofnun hefur að undanförnu unnið að því í samvinnu við hafnaryfirvöld að hafnir á landinu vinni áætlanir um móttöku og meðhöndlun úrgangs. Markmiðið er að tryggja viðunandi móttökuaðstöðu í höfnum og draga úr losun úrgangs í sjó frá skipum. Tilefnið er úttekt Siglingaöryggisstofnunar Evrópu árið 2010 á hafnaraðstöðu hér á landi. Var fundið að því að engar áætlanir hafna um móttöku og meðhöndlun úrgangs höfðu verið staðfestar. Sigurrós Friðriksdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, segir að þrátt fyrir aðfinnslur Siglingaöryggisstofnunar hafi verið við lýði ágætt kerfi á Íslandi hvað varðar úrgangsmál skipa og hafna. Hins vegar segir Sigurrós að magntölur vanti í þessu samhengi en í áætlun, sem er í vinnslu, verður gætt að því sérstaklega að hafnirnar safni slíkum upplýsingum. „Áætlanirnar eru endurskoðaðar innan þriggja ára, og ráðgert að þá verði hafnirnar með þessar upplýsingar.“ Umhverfisstofnun fór fram á það við 44 rekstraraðila hafna að skila inn áætlunum um móttöku og meðhöndlun úrgangs fyrir samtals 82 hafnir. Viðbrögð voru almennt góð en í september var þeim veitt áminning sem þrátt fyrir tilmæli höfðu enn ekki sent inn áætlun. Sigurrós telur enga ástæðu til að halda að aðstöðuleysi í höfnum hafi orðið til þess að letja sjómenn í að skila af sér úrgangi sem fellur til um borð. „Ég tel einnig að mikil framför hafi orðið á síðustu árum og íslenskir sjófarendur fari vel út úr samanburði um umgengni við önnur lönd. Lengi var viðkvæðið að hafið tæki lengi við, en þetta er ekki rétt og á því hafa allir áttað sig.“ Í ársskýrslu Úrvinnslusjóðs fyrir árið 2011 kemur fram að ágætlega hefur gengið að fá veiðarfæraúrgang til endurvinnslu, en það er stór hluti þess úrgangs sem fellur til hjá fiskiskipaflotanum. Gert er ráð fyrir að um 1.100 tonn af veiðarfæraúrgangi falli til á Íslandi árlega. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Sjá meira