Allt að 30.000 tonn af síldinni drápust svavar@frettabladid.is skrifar 22. desember 2012 07:00 Kolgrafafjörður í vikunni Fyrstu kenningar gerðu ráð fyrir að nokkur hundruð tonn hefðu drepist, en ljóst er að magnið er gífurlegt. fréttablaðið/valli
Fyrstu niðurstöður Hafrannsóknastofnunar gera ráð fyrir að 25 til 30 þúsund tonn af íslensku sumargotssíldinni hafi drepist inni í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi fyrir rúmri viku. Súrefnisskortur er nú talinn aðalástæða síldardauðans og að hann hafi meðal annars komið til vegna þess gríðarlega magns af síld sem safnaðist fyrir í firðinum. Hafrannsóknastofnunin fór til mælinga í firðinum þriðjudaginn 18. desember til að reyna að varpa ljósi á orsakir síldardauðans og leggja mat á magn dauðrar síldar í firðinum. Ástand sjávarins var kannað; hiti, selta og súrefni. Botn fjarðarins var skoðaður með neðansjávarmyndavélum. Þá voru fjörur gengnar og mat lagt á magn dauðrar síldar þar einnig. Súrefnismettun í firðinum mældist mjög lág, reyndar lægri en áður hefur mælst í sjó við landið. Líklegt telur Hafró að þessi lækkun á styrk súrefnis stafi meðal annars af öndun síldar sem var í miklu magni innan brúarinnar yfir fjörðinn dagana áður en mælingarnar voru gerðar. Daginn sem síldin drapst er talið að á milli 250 til 300 þúsund tonn hafi verið í firðinum og tíu prósent hafi drepist. Myndatökur á botni fjarðarins benda til, með tilliti til stærðar fjarðarins, að magn dauðrar síldar á svæðinu gæti verið 25-30 þúsund tonn. Það mat er þó háð óvissu, að sögn Hafró. Enda þótt síldin sé nú komin af því svæði þar sem styrkur súrefnis var mjög lágur er mögulegt að það ástand vari áfram vegna rotnunar á dauðum fiski. Rotnunin getur viðhaldið lágu súrefnismagni í firðinum og því gæti áframhaldandi hætta verið til staðar á næstu mánuðum og misserum fari fiskur inn á það svæði í miklu magni. Bergmálsmælingar á lifandi síld sýna að umtalsvert magn var af síld utan við brúna í Kolgrafafirði og virðist sem síldin hafi að mestu fært sig af svæðinu innan við brú. Alls mældust um 10 þúsund tonn innan brúar en utan við brú í firðinum mældust rúmlega 250 þúsund tonn.
Mest lesið Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent Fleiri fréttir Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Sjá meira