Dýrari vörur munu brátt komast í gegn sunna@frettabladid.is skrifar 21. desember 2012 06:00 Hlutir mega kosta meira Lög um hámarksverðmæti tollfrjálsra vara hafa verið eins frá árinu 2008, þrátt fyrir gengishrun íslensku krónunnar.
Hámarksverð á innfluttum tollfrjálsum varningi verður hækkað úr 65 þúsund krónum í 88 þúsund krónur og hámark á verðmæti einstaks hlutar verður afnumið. Svo hljóða breytingartillögur meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar sem voru lagðar fram í gær við frumvarp til laga um breytingar á vörugjöldum og tollalögum er varða hámarksverðmæti á tollfrjálsum varningi sem ferðamenn koma með til landsins. Íslendingar sem ferðast út fyrir landsteinana mega í dag taka tollfrjálsan varning inn í landið að hámarksverðmæti 65 þúsund krónur og verðmæti einstaks hlutar má ekki vera meira en 32.500 krónur. Þá eru sérstakar takmarkanir á því hve mikið af matvöru, áfengi og tóbaki má taka með inn í landið. Hámarkið er hvergi eins lágt í nágrannalöndunum og hér á landi. Innan ríkja Evrópusambandsins (ESB) er sambærilegt hámark 430 evrur, jafngildi ríflega 71.500 króna, en taka skal fram að milli tveggja ESB-ríkja eru allar vörur tollfrjálsar ef frá er skilið áfengi og tóbak. Fram kemur í nefndaráliti meirihlutans að fjárhagsviðmiðið hafi haldist óbreytt síðan í lok árs 2008 en gengi íslensku krónunnar hafi hríðlækkað. Því segi það sig sjálft að ferðamenn geti ekki komið með eins mikið af verðmætum inn í landið og áður. Síðan síðustu breytingar voru gerðar hefur vísitala neysluverðs hækkað um tæplega þriðjung og gengi krónunnar veikst um ríflega þriðjung. Þannig væri 65 þúsund króna hámarkið ríflega 100 þúsund krónur hefði það haldið í við gengisþróun krónunnar á móti Bandaríkjadal. Efnahags- og viðskiptanefnd fékk fjölda hagsmunaaðila og annarra sem málin varða á fund til sín, meðal annars forsvarsmenn frá embætti tollstjóra, ráðuneytinu, Samtökum verslunar og þjónustu, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum iðnaðarins og embætti Landlæknis. Þá barst nefndinni einnig fjöldi umsagna um málið.
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Fleiri fréttir Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Sjá meira