Skíðasvæði víða opin yfir hátíðarnar 21. desember 2012 06:00 Í bláfjöllum Fréttablaðið birtir í dag kort yfir helstu skíðasvæði landsins og opnunartíma þeirra yfir hátíðarnar. Fréttablaðið/Anton
Öll helstu skíðasvæði landsins eru opin vikuna fyrir jól, nema í Oddskarði og Skálafelli. Alls staðar er einhver opnun yfir hátíðarnar, en mismikil þó. Hvað höfuðborgarsvæðið varðar þá er opið í Bláfjöllum og ágætisfæri þótt þar hafi undanfarna daga þurft að loka svæðum vegna hvassviðris. Ekki er enn búið að opna í Skálafelli, en ákveðið hefur verið að hafa þar opið um helgar frá og með 1. febrúar og fram yfir páska. „Nú aukast líkurnar talsvert á að hægt sé að skella sér í fjöllin um helgar þar sem stundum er hægt að vera með opið í Bláfjöllum en ekki Skálafelli vegna veðurs, og öfugt,“ segir á vef Skíðasvæðis höfuðborgarsvæðisins. Einna mest opnun yfir hátíðarnar er svo í Hlíðarfjalli á Akureyri þar sem bara er lokað á aðfangadag og jóladag, en opið alla aðra daga fram á nýárið. Í Oddskarði er aftur lokað fram að öðrum í jólum og verður þá opið til 30. desember. Lokað er á gamlaárs- og nýársdag en annan janúar hefst venjuleg opnun. Skíðasvæðið í Skarðsdal á Siglufirði verður opið bæði á Þorláksmessu og aðfangadag, sem og á gamlársdag. Þar hefur verið opið, fyrir utan lokanir vegna veðurs fyrripart vikunnar. Skíðasvæðið í Tindastóli á Sauðárkróki var opnað í gær, fimmtudag, og verður opið fram á Þorláksmessu, þegar er hátíðaropnun, að því er fram kemur á vef skíðasvæðisins. Í Böggvisstaðafjalli á Dalvík er lokað á hátíðisdögum, en opið vikuna milli jóla og nýárs. Síðan verður opnað aftur strax annan janúar og „opið daglega meðan veður leyfir“, samkvæmt upplýsingum frá umsjónarmanni skíðasvæðisins. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Sjá meira