Selur burstabæi undir beru lofti í Salahverfi gar@frettabladid.is skrifar 20. desember 2012 08:00 Jón Karlsson Burstabæir Jóns Karlssonar hafa vakið verskuldaða athygli vegfarenda í Salahverfinu. FRÉTTABLAÐIÐ/vILHELM „
Ég hef skárra út úr þessu en ellistyrknum,“ segir Jón Karlsson, 74 ára líkanasmiður með meiru, sem selur burstabæi á víðavangi í Kópavogi. Jón, sem býr í þjónustuíbúð á Vesturgötu 7 í Reykjavík, fer stundum upp í Salahverfi í Kópavogi og kemur sér fyrir undir beru lofti til að selja bæina sína eins og vegfarendur þar hafa tekið eftir. Hann segir tvær ástæður fyrir staðarvalinu. „Ég hef selt ágætlega þar, bara einu sinni farið heim með öngulinn í rassinum og svo er þægilegt að leggja bílnum þarna. Þá er maður ekki að trufla umferð. Ég er alltaf skíthræddur um að gera einhverja skandala,“ segir hann. Smíðavinnan var ávallt aukastarf hjá Jóni. „Ég þvældist mikið um og hef víða komið við, var mest við akstur og var í netagerð austur á fjörðum. En nú er eiginlega aðalstarfið hjá mér að smíða skipslíkön,“ segir Jón. Burstabæina segir Jón fólk til dæmis hafa á veröndunum, í görðum og við sumarhús. Þá sé hægt að fá með ljósum. „Fólk heldur eiginlega ekki vatni yfir því hvað þetta er flott,“ segir Jón spurður um viðbrögðin. „Ég hef bara einu sinni fengið kvörtun,“ bætir hann við. „Hún var vegna þess að ég hafði fengið skemmt efni. Ég bara lét fólkið fá annað hús.“ Jón hyggst ekki standa mikið við næstu daga í Salahverfinu. „Ég verð mest með þetta heima. Svo flakka ég líka mikið, fer upp á Akranes og jafnvel hringinn í kringum landið,“ segir Jón og tekur skýrt fram að hann annist sjálfur söluna á sinni framleiðslu. „Ef þú smíðar bæi og lætur annan selja fyrir þig þá færð þú tíu þúsund krónur en hinir tuttugu þúsund fyrir að rétta þá yfir búðarborðið. Það kæri ég mig ekki um.“ Sjálfur selur hann húsin á 16.500 krónur. Jón smíðar fleira en skip og hús. „Mér dettur svo margt í hug sem óbrjáluðum manni hefði ekki dottið í hug,“ segir Jón, sem kveðst meðal annars hafa hannað burstabæi til að hylja lok á rotþróm auk þess að smíða fallbyssur eins og í sjóræningjaskipunum. „En ég vil bara ekki selja mikið af þeim fyrr en ég er búinn að prófa þær niðri við Alþingishús,“ segir hann hlæjandi.
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Fleiri fréttir Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Sjá meira