Gagnrýnir lögregluna 10. desember 2012 06:00 Lýður Guðmundsson við kynningu á hálfsársuppgjöri Exista árið 2008. Hann var stjórnarformaður.fréttablaðið/gva
Lýður Guðmundsson gerir ?alvarlegar athugasemdir við rannsóknaraðferðir lögreglu? í máli gegn honum og Bjarnfreði H. Ólafssyni lögmanni. Í greinargerð verjanda Lýðs, Gests Jónssonar, eru rannsóknaraðferðir lögreglunnar sagðar í ósamræmi við grundvallarreglur sakamálalaga og að lögregla hafi brotið gegn hlutlægnis- og meðalhófsreglum. Lýður er ákærður fyrir stórfellt brot gegn hlutafélagalögum. Honum er gefið að sök að hafa vísvitandi brotið gegn ákvæðum um greiðslu hlutafjár með því að greiða minna en nafnverð fyrir nýtt hlutafé í Existu í desember 2008. Nafnvirði hlutanna var fimmtíu milljarðar en lagður var fram einn milljarður. Upphæðin rann aldrei inn í rekstur Existu samkvæmt ákærunni. Hann er ákærður sem stjórnarmaður einkahlutafélagsins BBR, sem keypti umrætt hlutafé og borgaði fyrir það með hlutum í einkahlutafélaginu Kvakki. Þá eru Lýður og Bjarnfreður ákærðir fyrir að hafa vísvitandi skýrt rangt og villandi frá hækkun á hlutafé Existu þegar tilkynning var send til hlutafélagaskrár, en þar kom fram að hlutafjárhækkunin hefði að fullu verið greidd. Brotin varða allt að tveggja ára fangelsi. Það að ákærunni sé ekki beint að stjórn félagsins, sem tók ákvörðun um hækkun og útgáfu nýs hlutafjár, vekur athygli, segir í greinargerðinni. Lýður segir lögreglu hafa reynt að villa um fyrir vitnum málsins við rannsóknina, og gagnrýnir það harðlega. Lögregla hafi lagt hald á skjöl sem staðfestu vaxtagreiðslu Existu af sambankaláni sem var á gjalddaga 5. desember 2008. Þrátt fyrir það segir Lýður að fyrrverandi stjórnarmönnum hafi verið sagt við yfirheyrslur að engin slík skjöl hafi fundist í húsleitum. Þá segir í greinargerðinni að gripið hafi verið til tilefnislausra þvingunarráðstafana gegn honum. Tilefnislaus húsleit hafi verið gerð á heimilum hans bæði á Íslandi og í Bretlandi, en engin gögn sem voru haldlögð þar voru lögð fram fyrir dómi. Sími Lýðs var hleraður í tæpan mánuð árið 2010. Hann er ósáttur við að hann hafi ekki verið upplýstur um hleranirnar fyrr en tveimur árum eftir að þeim lauk. Þá hafi engin símagögn verið lögð fram fyrir dómi. Lýður gagnrýnir líka þann drátt sem varð á rannsókn málsins. Skýrslur voru teknar í janúar og febrúar 2010, en þegar ákæran var gefin út hafði málið verið í rannsókn hjá sérstökum saksóknara í um 33 mánuði. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Sjö ára dómur Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira