Dánarorsök ókunn tæpu ári eftir andlát 10. desember 2012 06:00 Enginn sérfræðingur í réttarmeinafræði er starfandi á Landspítalanum svo kalla þarf til erlenda sérfræðinga til að sinna þeim málum sem upp koma. Fréttablaðið/Vilhelm
Dæmi er um að aðstandendur þurfi að bíða í rúmlega tíu mánuði eftir að fá niðurstöður um dánarorsök eftir krufningu hjá Landspítalanum. Enn á eftir að rannsaka dánarorsök um 50 einstaklinga sem létust á árinu. Tíu mánuðir eru liðnir frá því að eiginkona Viðars Gíslasonar varð bráðkvödd en enn hefur hann ekki fengið að vita dánarorsökina. "Þetta hvílir mjög þungt á mér og öðrum aðstandendum. Það er óþægilegt fyrir okkur að fara í kirkjugarðinn og tala við konuna mína og vita ekki úr hverju hún dó. Fólk skilur þetta kannski ekki nema hafa lent í þessu sjálft," segir Viðar. Honum var upphaflega sagt að tvo til þrjá mánuði tæki að fá skorið úr um dánarorsök konunnar í kjölfar krufningar, en hefur enn engin svör fengið. Hann segist ítrekað hafa kannað stöðu málsins hjá Landspítalanum. "Ég er ekki kominn yfir reiðina, sérstaklega eftir að ég frétti í lok september að krabbameinsfrumur hefðu fundist í maganum á henni. Hún fór í gegnum fjölda læknisrannsókna síðustu ár og í þeim kom aldrei neitt tengt krabbameini fram," segir Viðar. "Ef hún er búin að fara í allar þessar rannsóknir og ekkert hefur fundist en svo finnst krabbamein núna þegar hún er krufin hlýtur sú spurning að vakna hversu lengi það hefur verið þarna." Um það bil fimmtíu rannsóknum á einstaklingum sem látist hafa á árinu er ólokið," segir Bjarni A. Agnarsson, yfirlæknir á rannsóknarstofu í meinafræði á Landspítalanum. Enginn sérfræðingur í réttarmeinafræði hefur verið starfandi við spítalann síðustu ár. Aðeins einn íslenskur læknir með þá sérhæfingu er starfandi í dag, en hann flutti af landi brott fyrir nokkrum árum. Landspítalinn hefur því fengið erlenda sérfræðinga til að koma hingað reglulega og sinna þeim verkefnum sem til falla. "Þetta leiðir til þess að málin tefjast. Þetta er ástand sem við erum ekki ánægðir með en svona er þetta," segir Bjarni. "Helst vildi ég að öll mál kláruðust á eðlilegum tíma, tveimur til þremur mánuðum, en við höfum ekki náð því eins og staðan er."- bj
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira