Vilja rannsókn vegna lífeyrisskuldbindinga GAR skrifar 8. desember 2012 08:00 Bæjarstjórinn í Hafnarfirði vísar því á bug að bæjaryfirvöld hafi getað varist því að taka yfir 1.700 milljóna króna skuldbindingu vegna lífeyris fyrrverandi starfsmanna Sparisjóðs Hafnarfjarðar.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ítrekar við sérstakan saksóknara að hann rannsaki eftirmál greiðsluþrots Byrs með tilliti til hagsmuna bæjarins. Nú liggur fyrir að Hafnarfjarðarbær þarf að taka á sig 1.700 milljóna króna skuldbindingu vegna lífeyris fyrirverandi starfsmanna Sparisjóðs Hafnarfjarðar (SPH). Starfsmennirnir greiddu frá árinu 1973 í Eftirlaunasjóð Hafnarfjarðar. Sparisjóðurinn gekk inn í Byr á árinu 2008. Byr varð gjaldþrota í kjölfar hrunsins. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfirði, segir það hafa verið sjónarmið bæjarins að lífeyriskröfur starfsmanna SPH ættu forgang í þrotabú BYRS, líkt og launakröfur. Nýlegur dómur Hæstaréttar í sambærilegu máli þýði hins vegar að bærinn verði að taka ábyrgð á lífeyrisgreiðslunum. Sú skuldbinding nemi nú áðurgreindum 1,7 milljörðum króna. Í bókun á bæjarstjórnarfundi á miðvikudag lýsti minnihluti sjálfstæðismanna áhyggjum af skuldbindingunni og minnti á að bæjarráðið hefði 12. maí 2010 óskað eftir skoðun sérstaks saksóknara á greiðsluþroti Byrs. Ekkert virðist hafa komið út úr því. Þeir lögðu til að aftur yrði þess óskað að sérstakur saksóknari skoðaði hvað leiddi til fyrrgreindrar niðurstöðu og hverjir bæru ábyrgð. Rósa Guðbjartsdóttir bæjarfulltrúi segir sjálfstæðismenn vilja að í leiðinni sé skoðað hvað bæjaryfirvöld gerðu til að reyna að afstýra því að bærinn sæti uppi með ábyrgð á eftirlaunaskuldinni. Hafnarfjörður sé væntanlega eina bæjarfélag landsins sem þurfi að ábyrgjast eftirlaunagreiðslur hóps bankastarfsmanna. „Þetta er liður í því að fá allt upp á borð og ætti að vera fagnaðarefni fyrir meirihluta Samfylkingarinnar og Vinstri grænna, en fulltrúar þeirra hafa ítrekað rætt um mikilvægi „gagnsæi“ og „öxlun ábyrgðar“ í bæjarstórn Hafnarfjarðar og víðar,“ segir Rósa. Meirihluti Samfylkingar og VG í bæjarstjórn kvaðst taka undir áhyggjur af skuldbindingum og áhyggjur af dræmum viðbrögðum sérstaks saksóknara. Guðrún bæjarstjóri vísar því hins vegar alfarið á bug að bæjaryfirvöld hafi ekki staðið nægilega vel að málum. „Ég sé ekki með hvaða hætti bæjaryfirvöld hefðu getað komið í veg fyrir hæstaréttardóminn og þá forsendubreytingu sem hefur orðið. Það er dæmt samkvæmt því að viðkomandi fyrirtæki fari á hausinn. Og ekki gátum við komið í veg fyrir að Byr yrði gjaldþrota,“ segir Guðrún. Aðspurð segir Guðrún menn meðal annars vilja láta skoða 7.920 milljóna króna arðgreiðslu hjá Byr á árinu 2008 og 1.800 milljón króna lán til Exeter Holding það sama ár.G
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira