Sönnunarbyrðin er á komufarþegunum Þorgils skrifar 8. desember 2012 08:00 Gísli Tryggvason
Sönnunarbyrði vegna uppruna þeirra hluta sem farþegar koma með til landsins liggur hjá þeim sjálfum, en ekki tollgæslunni. Tollstjóri segir að í grunninn sé um að ræða kröfu farþega um tollfrelsi og því heyri það upp á þá að sýna fram á að þeir eigi rétt á því. Talsmaður neytenda segir hæpið að ganga svo gegn hagsmunum neytenda. Tollgæslan beinir þeim tilmælum til þeirra sem fara utan með verðmæti, sem eru tollskyld að þau taki með sér kvittun eða annars konar sönnun um að greitt hafi verið tilheyrandi aðflutningsgjöld af viðkomandi hlut. Snorri Olsen tollstjóri játar því að í raun sé ekki hægt að skylda fólk til þess að taka kvittanir með sér til að sanna uppruna vöru. Málið þurfi þó að skoða á réttum forsendum. „Almenna reglan er sú að allt sem þú tekur með þér til landsins er tollskylt. Undanþágan, samkvæmt lögum, er að ferðamenn njóta tollfrelsis upp að ákveðnu marki. Ef verðmæti vörunnar er umfram það, þarf viðkomandi að sýna fram á að búið sé að greiða af henni. Ef því væri farið á hinn veginn væri útilokað að við gætum stoppað nokkurn einasta mann í svona málum.“ Snorri segir þó að ef ferðamaður er stöðvaður með vöru, til dæmis myndavél, sem er augljóslega ekki nýkeypt, geti það verið trúverðugt og ekkert væri þá gert í málinu. Tollverðir taki afstöðu til hvers tilfellis og ef svo vill til að vafi leikur á um fullyrðingu ferðamanns, er varan tekin af viðkomandi, tímabundið. Þá fær hann tækifæri til að finna kvittun eða aðra sönnun fyrir því að sannarlega sé búið að greiða aðflutningsgjöld af vörunni og fær hana þá aftur. „Geti viðkomandi alls ekki sýnt fram á með nokkrum hætti að búið sé að greiða af hlutnum, þá ber hann því miður hallann af því og ég skil vel að menn geti orðið sárir yfir því.“ Fyrir nokkrum árum var hægt að skrá hluti hjá tollinum áður en haldið var utan, en Snorri segir að jafnvel það hafi ekki falið í sér sönnun um að gjöld hafi verið greidd og því standi slíkt ekki lengur til boða. Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, segir aðspurður að almennt finnist honum ekki þess háttar fyrirkomulag réttlátt. „Það er hæpið að snúa alveg við sönnunarbyrðinni fyrir því að neytandi hafi keypt vöru áður en hann fór úr landi. Alla vega ekki án þess að bjóða upp á einfalda málskotleið til óháðs aðila. Hagsmunir einstaklinga fyrir því að fá að kaupa og fara með hluti úr landi og aftur heim hljóta að vega þyngra en skattheimtuhagsmunir ríkisins.“
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Sjö ára dómur Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira