Leysa á launadeilu innanhúss hjá LSH 7. desember 2012 07:00 LSH Gangi í gegn uppsagnir 250 hjúkrunarfræðinga við Landspítalann blasir við að starfsemi spítalans lamist að hluta. Fréttablaðið/Vilhelm
Reynt verður að koma til móts við kröfur hjúkrunarfræðinga um úrbætur á stofnanasamningi við Landspítalann, án viðbótarfjárveitingar frá ríkinu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa starfsmenn fjármálaráðuneytisins verið stjórnendum Landspítalans innan handar við að greina hvernig nýta á svigrúm, sem myndast hefur í ár við að dregið hafi verið úr aðhaldskröfum á spítalann, til þess að endurskoða stofnanasamning við hjúkrunarfræðinga. Sú endurskoðun eigi svo einnig að ná til annarra stétta háskólamenntaðra starfsmanna sem telja sig í svipaðri stöðu og hjúkrunarfræðingar. Í þeim hópi munu vera bæði lífeindafræðingar og geislafræðingar. Leiðrétting sem ná mætti fram með þessum hætti yrði hins vegar bara tímabundin aðgerð fram að næstu kjarasamningum, en þeir eru í gildi út næsta ár hjá hjúkrunarfræðingum. Skiptar skoðanir eru um það meðal hjúkrunarfræðinga hvort láta eigi af sérstökum stofnanasamningum, en þá myndu kjör þeirra einvörðungu ráðast af kjarasamningi. Við endurskoðun á stofnanasamningi við hjúkrunarfræðinga yrði horft til þeirrar hagræðingar sem náðst hefur fram á spítalanum með breytingum á dagdeildaþjónustu og fleiri þáttum. Reyna á að beina inn í þá vinnu öllu því svigrúmi sem hægt sé á spítalanum, með endurskoðun og frestun á öðrum framkvæmdum. Samkvæmt heimildum blaðsins er horft til þess að bæta megi Landspítalanum upp hluta þeirra tilfæringa með auknum fjárframlögum síðar. Hjúkrunarfræðingar á Landspítalanum óskuðu í janúar á þessu ári eftir endurskoðun á stofnanasamningi við spítalann, en fengu þau svör að ekki væri fjármagn til breytinga. Samkvæmt heimildum blaðsins standa vonir til þess að eftir yfirlegu á áætlunum spítalans geti viðræður stjórnenda spítalans við fulltrúa hjúkrunarfræðinga um breytingar á stofnanasamningnum gengið tiltölulega hratt fyrir sig. Spítalinn muni nú reyna að teygja sig og nýta fyrirliggjandi fjárheimildir til að bæta starfsfólki upp álag, en það sé gert í framhaldi af vinnu sem hafi verið farið í eftir að óskað var eftir endurskoðun stofnanasamningsins í byrjun ársins. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira