Frumvarpið veikir Alþingi 6. desember 2012 07:00 Í Hátíðasal HÍ Ómar H. Kristmundsson, prófessor og deildarforseti stjórnmálafræðideildar Háskólans, stýrði fundi í gær. Við borðið sitja Skúli Magnússon, Guðni Th. Jóhannesson, Stefanía Óskarsdóttir og Gunnar Helgi Kristinsson.Fréttablaðið/GVA
Nokkur vafi leikur á því að breytingar sem lagðar eru til á stjórnarskrá landsins verði til góðs þegar horft er til starfshátta ríkisstjórna, stjórnarmyndana, hlutverks forsetans og skipunar embættismanna. Þetta kom fram á fundi í hátíðarsal Háskóla Íslands í gær. Fundurinn er númer tvö í fundaröð sem háskólar landsins standa sameiginlega að. Í pallborði voru Skúli Magnússon, héraðsdómari og dósent við lagadeild Háskóla Íslands (HÍ), Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur og stundakennari við lagadeild Háskólans í Reykjavík, Stefanía Óskarsdóttir, lektor við stjórnmálafræðideild HÍ, og Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor við stjórnmálafræðideild HÍ. Í viðbrögðum við spurningum úr sal sagði Skúli Magnússon ýmislegt benda til þess að staða Alþingis myndi veikjast. „Skipan embættismanna er að vissu leyti tekin út fyrir ráðherra sem ber ábyrgð gagnvart þinginu, erfiðara er að samþykkja vantraust á ríkisstjórn, þingið getur átt erfitt með að hagga við sjálfstæðum stofnunum og svo er rætt um að forseti Íslands fari með vald sem hann fer ekki með ásamt ráðherra,“ sagði Skúli. Forsetinn bæri ekki þingræðisábyrgð gagnvart Alþingi og almennt væri varhugavert að úthluta valdi án ábyrgðar. Guðni Th. Jóhannesson segir forystumenn í stjórnmálum alla tíð hafa sagt að gera þyrfti breytingar á stjórnarskrá sem settu ramma utan um heimild forsetans til að skipa utanþingsstjórn. Tillögu stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá segir hann líka bera keim af hugmyndum í þessa átt. „En ég held að eftir standi það sem líka er lærdómur sögunnar, að veldur hver á heldur. Forsetinn mun hafa áhrif, lítil eða mikil eftir því hvað hann eða hún vill.“ Stefanía Óskarsdóttir sagði erfitt að fullyrða um áhrif þess að persónukjör fengi mikið vægi í kjöri til Alþingis. Þó mætti gera ráð fyrir að stjórnmálin yrðu persónumiðaðri og stefnufesta myndi minnka. Þannig yrði Alþingi veikara fyrir en ella. Þá væri ekki séð fyrir endann á áhrifum þess að forsætisráðherra skipaði og ræki ráðherra. Líklegt væri að ráðherrar yrðu í auknum mæli sóttir út fyrir hóp þingmanna. „Ráðherrar munu líka missa atkvæðisrétt sinn á þingi og vel má sjá fyrir sér að stjórnmálamenn sem notið hafa vinsælda í kosningum hugsi sig um tvisvar áður en þeir yfirgefa þingið sem vettvang, eða fara yfir í stjórnarráðið.“ Gunnar Helgi Kristinsson sagði margvíslegan vanda fyrirséðan með nýju stjórnarskránni, veika og ósamstæða stjórnmálaflokka, meirihlutamyndun í þinginu kynni að verða óviss, pattstaða gæti hugsanlega komið upp í samskiptum þings og stjórnar og ríkisstjórnin væri vængstýfð þegar kemur að stefnumótun í stærri málum. Hann segir lagðar til mjög róttækar breytingar á stjórnarskránni án þess að rökstuðningur fylgi því af hverju sú leið sé farin. olikr@frettabladid.is
Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Fleiri fréttir Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Tröppurnar við Grafarvogskirkju hreinsaðar Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Sjá meira