Sanna tollgreiðslur með kortayfirliti 6. desember 2012 07:00 Kári Gunnlaugsson
Kvittanir eru langalgengasta leiðin sem ferðamenn nota til að færa sönnur á að þeir hafi keypt tollskyldan varning hér á landi. Einnig er hægt að framvísa kreditkortayfirliti og þá getur tollurinn fengið upplýsingar frá raftækjaframleiðendum um hvort raðnúmer viðkomandi tækis svarar til vöru sem var seld á Íslandi. Fréttablaðið hefur að undanförnu fjallað um tollaeftirlit í Leifsstöð. Hinn 10. nóvember var fjallað um reglurnar sem um eftirlitið gilda og hinn 28. nóvember um þau viðurlög sem eru við smygli í gegnum tollinn. Sé einstaklingur stoppaður af tollvörðum í Leifsstöð getur viðkomandi þurft að sýna fram á að dýr varningur sem hann hefur meðferðis sé keyptur hér á landi og því þegar búið að greiða af honum toll. „Við förum fram á að fólk sanni eignarrétt sinn á viðkomandi hlutum. Hafi fólk kvittanir ekki meðferðis ráðleggjum við því að fara í umboðin hér heima og fá nótur enda eru þau sum með skrár yfir seldar vörur,“ segir Kári Gunnlaugsson, yfirtollvörður á Keflavíkurflugvelli, og bætir við: „Fólk getur einnig prentað út kreditkortayfirlit og fært okkur. Þá er fólk stundum tekið í skýrslutöku og ég held að það sé ekki mikið að ljúga að okkur þar. Þessi mál eru flest leyst á þann máta að sannleikurinn er leiddur í ljós.“ Geti einstaklingar ekki fært sönnur á að þeir hafi keypt varning innanlands með kvittunum eða kreditkortayfirliti er þó eitt ráð enn til staðar. „Ef mál fara lengra getum við sent fyrirspurn á fyrirtæki, eins og til dæmis Apple, varðandi raðnúmerið sem þeirra raftæki og flest önnur bera. Þannig er stundum hægt að rekja hvar varan var seld. Við höfum hins vegar ekki aðgang að neinum gögnum um slíkt enda væri það ekki leyfilegt samkvæmt persónuverndarlögum, sem við fylgjum í hvívetna,“ segir Kári. magnusl@frettabladid.is
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Fleiri fréttir Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Íslandsbanki hækkar vexti Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Sjá meira