Fram hótar málssókn standi borgin ekki við uppbyggingu 5. desember 2012 07:00 Framsvæðið Gervigrasvöllur og æfingavellir eru í notkun í Úlfarsárdal. Formaður Fram er ósáttur við að dregið sé úr áformum um uppbyggingu. Til að mynda eigi félagið að leika heimaleiki sína í Laugardalnum. „Er þá ekki bara betra að fara upp á Skaga?“ fréttablaðið/pjetur „
Ég lít svo á að þetta séu hrein og klár svik við Knattspyrnufélagið Fram og íbúa hverfisins,“ segir Ólafur Arnarson, formaður Knattspyrnufélagsins Fram um áætlun borgarstjórnar um minni uppbyggingu í Úlfarsárdal en ráðgert var. Fréttablaðið greindi frá því í gær að í stað 18 þúsund manna byggðar í dalnum væri nú gert ráð fyrir 2.500 til 3.000 manna byggð. Þá er áformað að reisa sundlaug og íþróttahús í hverfinu, auk nýs samþætts leik- og grunnskóla. Reykjavíkurborg og Fram undirrituðu samning 1. maí 2008 um að félagið flytti í Úlfarsárdal. Ólafur segir að með honum hafi borgin lofað uppbyggingu fyrir 2.750 milljónir króna á þávirði, sem í dag nema 3.632 milljónum uppfærðum að verðlagsþróun. Eftir hrun var gerður viðaukasamningur og samkvæmt honum ráðist í framkvæmdir við gervigrasvöll, æfingavelli og bílastæði fyrir 500 milljónir króna. Ólafur segir að félagið eigi ekki annars úrkosti en að leita réttar síns, verði ekki staðið við samninginn. „Þá er bara dómstólaleiðin eftir. Við erum með samninginn í höndunum og verðum að fá úr því skorið hvort hann standist eða ekki. Við teljum að við höfum það með okkur að það er búið að lofa okkur vissum hlutum. Svo má ekki gleyma því að Reykjavíkurborg er líka að fá verðmætt byggingarland í Safamýri.“ Ólafur segir Fram hafa fullan hug á að flytja í Úlfarsárdalinn, jafnvel þó hverfið verði ekki jafn fjölmennt og fyrirhugað var. Félagið verði hins vegar að fá aðstöðu sem dugi félögum þess til að iðka sínar íþróttir. „Fram getur aldrei farið þarna upp eftir til þess að sinna íþróttastarfi þar á þessum forsendum sem Reykjavíkurborg er að búa til. Það verður aldrei hægt og það segir sig sjálft,“ segir Ólafur og bendir á að félagið eigi, samkvæmt áætlun, áfram að leika heimaleiki sína í Laugardalnum. Fram, Íbúasamtök Grafarholts og Íbúasamtök Úlfarsárdals samþykktu ályktun eftir að þeim voru kynnt áformin fyrir helgi. Þar eru borgaryfirvöld krafin um samvinnu, enda sé um mikið hagsmunamál að ræða. Þá er þess krafist að „borgaryfirvöld standi við gildandi skipulag og gerða samninga og geri skurk í uppbyggingu hverfisins“. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira