Innlent

Báturinn ónýtur eftir aðeins fimmtán róðra

ÞJ skrifar
Stýrimaður björgunarþyrlunnar seig niður til skipverjanna, sem höfðu komist upp í fjöru af sjálfsdáðum. Skjáskot/LHG
Stýrimaður björgunarþyrlunnar seig niður til skipverjanna, sem höfðu komist upp í fjöru af sjálfsdáðum. Skjáskot/LHG
Línubátnum Jónínu Brynju ÍS 22, sem strandaði við Straumnes á norðanverðum Vestfjörðum í fyrradag, verður sennilega ekki bjargað heilum af strandstað. Þetta staðfesti Jakob Valgeir Flosason, eigandi útgerðarinnar Jakobs Valgeirs í Bolungarvík sem á bátinn, í samtali við Fréttablaðið í gær.

Jakob Valgeir sagði að mannskapur hefði farið út í bátinn í gær til að bjarga tækjabúnaði, veiðarfærum og öðrum verðmætum sem hægt var.

Jónína Brynja er fimmtán tonna plastbátur sem kom glænýr í heimahöfn í upphafi mánaðar. Nýr er hann talinn kosta um 130 milljónir króna. Játar Jakob Valgeir því að um mikið áfall sé að ræða. „Það er þó fyrir mestu að mennirnir björguðust. Það er hægt að bæta veraldlega skaðann,“ sagði Jakob Valgeir.

Jónína Brynja var á heimleið úr sinni fimmtándu sjóferð með um sex tonna afla innanborðs. Jakob Valgeir segir að sennilega sé hægt að rekja slysið til mannlegra mistaka.

Skipverjarnir tveir komust sjálfir í land heilu og höldnu og var bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar um tveimur tímum eftir strandið. Jakob Valgeir segir útgerðina hafa tvo aðra báta, en unnið sé að því að fá annan bát á sjó í stað Jónínu Brynju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×