Erlent

Slæmt að fylgjast með sínum fyrrverandi

Þeir sem fylgjast með sínum fyrrverandi á Face-book eru lengur að ná sér eftir sambandsslit en þeir sem gera það ekki. Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar sem gerð var í San Diego í Bandaríkjunum. Í rannsókninni var fylgst með hvernig 464 einstaklingum, sem notuðu Facebook, tókst að jafna sig eftir sambandsslit.

Talið er að um milljarður manna noti Facebook og þriðjungur er talinn vera í Facebook-sambandi við sína fyrrverandi.- ibs



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×