Erlent

Segir ákærur vera pólitískar

Julius MAelma
Julius MAelma
„Ég hef ekkert að fela," sagði Julius Malema, suðurafrískur stjórnmálamaður sem kom fyrir rétt í gær sakaður um spillingu, skattsvik og peningaþvætti. „Þeir eru að eyða tíma sínum," sagði hann.

Malema var rekinn úr Afríska þjóðarráðinu fyrr á þessu ári, sakaður um að efna til illdeilna. Hann hafði þá sagt af sér sem formaður ungliðahreyfingar flokksins eftir að hann hafði látið syngja gömul baráttulög gegn hvíta minnihlutanum, sem áður kúgaði svarta meirihlutann á tímum aðskilnaðarstefnunnar.

Malema hefur verið áberandi undanfarið í tengslum við verkföll námuverkamanna.- gb



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×