Kostir við tvöfalt lögheimili barna metnir 22. september 2012 06:00 Samkvæmt nýrri þingsályktunartillögu skal innanríkisráðherra skipa starfshóp um jafnt búsetuform barna á tveimur heimilum. Hópurinn á að skila skýrslu fyrir lok næsta árs. Fréttablaðið/Heiða
Börn sem búa til skiptis hjá foreldrum á tveimur heimilum gætu átt þess kost að skrá lögheimili sitt á báðum stöðum innan tveggja ára, ef þingsályktunartillaga tíu alþingismanna úr öllum flokkum nema Vinstri grænum verður samþykkt. Í tillögunni felst að innanríkisráðherra verður falið að skipa starfshóp til að gera skýrslu um það hvernig útfæra megi jafnt búsetuform barna sem búa við ofangreindar aðstæður. Yfirlýst markmið er að eyða aðstöðumun heimila þegar foreldrar sem búa ekki saman ákveða að ala upp börn sín í sameiningu á tveimur heimilum. Til þess skal hópurinn meta hvort rétt sé að taka upp kerfi sem heimilar tvöfalt lögheimili barna, eða stinga upp á öðru hentugra kerfi. Starfshópurinn á að skila niðurstöðum fyrir lok næsta árs og frumvarp byggt á niðurstöðum hópsins skal lagt fram eigi síðar en á haustþingi 2014. Í greinargerð með tillögunni segir að í löggjöfinni geti talsverður aðstöðumunur verið á foreldrum með sameiginlega forsjá. Meðal annars þar sem gert er ráð fyrir því að það foreldri sem barnið á lögheimili hjá skuli hafa töluvert meira að segja um hagi barnsins en hitt foreldrið. Þó bendi nýlegar rannsóknir til þess að líðan þeirra barna sem búa til skiptis hjá báðum foreldrum sínum á tveimur heimilum sé jafngóð og þeirra barna sem búa á einum stað hjá báðum foreldrum sínum.- þj
Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Fleiri fréttir „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Sjá meira