Strætó býður ferðir til fjörutíu kaupstaða 25. ágúst 2012 06:00 Eftir áramót verða Vestfirðir og Austfirðir einu landshlutarnir sem Strætó keyrir ekki til, að hálendinu undanskildu. Fréttablaðið/Pjetur
Um áramótin hefst reglubundinn akstur Strætó um allt norðaustanvert landið. Hægt verður að taka strætó frá Reykjavík til Egilsstaða. Akstur til Leifsstöðvar í skoðun. Aust- og Vestfirðir einu byggðu landshlutarnir sem eru undanskildir. Strætó mun hefja reglubundinn akstur um mestallt norðaustanvert landið eftir áramót. Þá verður hægt að taka strætó frá Akureyri til Siglufjarðar, Húsavíkur, Þorlákshafnar og Egilsstaða. Forsvarsmenn Strætó hafa nú þegar gert samninga um fyrirkomulagið við tilheyrandi sveitarfélög og segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs., að aksturinn muni hefjast um og eftir áramót, en daglegar ferðir á milli Akureyrar og Reykjavíkur hefjast 2. september næstkomandi, eins og greint hefur verið frá. „Það verður enn frekari útbreiðsla á strætisvagnakerfinu með því að taka inn allt Norðurland eystra, Siglufjörð og byggðina austan Akureyrar,“ segir Reynir. „Þá sitja Austfirðirnir og Vestfirðir eftir.“ Enn frekara samstarf við sveitarfélögin á Suðurnesjum er einnig í undirbúningi. Samtök sveitarfélaganna hafa óskað eftir svipuðu samstarfi við Strætó og hefur tíðkast á Suðurlandi og segir Reynir að takmarkið sé að gera bæjarfélögin eins samtengd og kostur er. Um áramótin mun Strætó keyra til um 40 bæjarfélaga utan höfuðborgarsvæðisins á Suðurlandi, Suðurnesjum, Vesturlandi og austanverðu Norðurlandi. Aðspurður hvernig vagnarnir muni ráða við ófærð á vegum að vetri til segir Reynir það vera í skoðun. „Þessir vagnar eru engin torfærutröll,“ segir hann. „Strætóarnir okkar þola þó meira rok heldur en stór rúta sem er upphækkuð, en hún gæti verið duglegri í snjó. Það eru alltaf kostir og gallar.“ Þá bætir Reynir við að öryggismál farþega verði þó alltaf í forgrunni og því sé nú unnið að veðurviðmiðunum vegna akstursins úti á landi. Akstursleiðum utan höfuðborgarsvæðisins er skipt upp í ellefu kílómetra belti í loftlínu og fer fargjaldið eftir því hversu mörg belti farið er yfir. Hvert tekur til sín 350 krónur miðað við hæsta gjaldflokk. Því kostar fargjald á milli Reykjavíkur og Akureyrar 7.700 krónur, þar sem farið er yfir 22 belti á leiðinni. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Sjá meira