Gagnrýnir skipulag Hörpu 11. ágúst 2012 07:00 Mynd/Vilhelm
Taka hefði átt upp skipulag Hörpu miklu fyrr að mati Þórunnar Sigurðardóttur sem skipuð var stjórnarformaður Ago, rekstrarfélags Hörpu, af menntamálaráðherra vorið 2009. Þórunn segir að breyta hefði þurft öllu uppleggi Hörpu, ekki síst hvað fjölda félaga varðar. „Þetta er tekið beint áfram eins og þetta var fyrir hrun. Ég hefði viljað láta taka þetta allt saman upp og auðvitað hefur það verið gert að einhverju leyti, en það hefði þurft að gera miklu meira. Ég varaði við því að farið væri út svona rekstrarmódel, sem hvergi er brúkað annars staðar í heiminum í sambærilegum húsum." Þórunn segir að málið snúist ekki aðeins um fjölda stjórna, heldur grunnhugmyndafræðina sem hefði þurft að endurskoða. „Ég hef gagnrýnt þá hugmyndafræði að hafa þetta í svona mörgum félögum, en einnig allt skipulagið. Menn héldu að það væri hægt að græða endalaust á listviðburðum og ráðstefnum. Við sem höfum verið í þessum bransa vitum að svo er ekki." Þórunn hefur bókað þá skoðun sína á stjórnarfundum frá því að hún tók við, en rekstri Hörpu er enn skipt upp í mörg félög. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, sagði í Fréttablaðinu á fimmtudag að ákveðið hefði verið að fá reynslu á reksturinn áður en farið yrði í gagngerar breytingar. Þórunn tekur undir að ákveðið hafi verið að láta reyna á fyrirkomulagið. „Þetta var spurning um að láta á þetta reyna, ef svo má segja. Útkoman er eins og hún er og það hefði þurft að taka þetta upp miklu fyrr." Áætlaður taprekstur Hörpu árið 2012 er 407 milljónir. Þórunn segir stjórnarmenn bera mikla ábyrgð og útilokar ekki afsögn. „Það fer svolítið eftir því hvernig spilast úr þessu núna."- kóp / sjá síðu 6
Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Sjá meira