Enn fleiri kirkjunnar þjónar ásakaðir um kynferðisbrot 9. ágúst 2012 06:15
Fjórir starfsmenn þjóðkirkjunnar voru sakaðir um kynferðisbrot á síðasta ári. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins snýr eitt málið að Ólafi Skúlasyni, fyrrverandi biskupi. Fram kemur í skýrslu Fagráðsins þjóðkirkjunnar um meðferð kynferðisbrota fyrir árið 2011 að allir einstaklingarnir sem sakaðir voru hafi starfað í þjónustu á vegum kirkjunnar. Einu þeirra mála var lokið um síðustu áramót af hálfu fagráðsins. Ekki er hægt að fá upplýsingar hversu margir einstaklingar leituðu til fagráðsins í fyrra eða hafa leitað til þess frá því það tók til starfa. Gunnar Rúnar Matthíasson, formaður fagráðsins, vill ekki tjá sig um einstök mál og vísar í skýrsluna. „Þetta er byggt upp þannig að einstök mál eru ekki sett fram sem slík," segir hann. „Ég vil ekki tjá mig um neitt umfram skýrsluna." Síðan árið 1998, þegar fagráðið tók til starfa, hafa borist ásakanir um kynferðisbrot á hendur 18 einstaklingum sem hafa verið í þjónustu kirkjunnar. Af þessum málum voru sex enn á borði fagráðsins um síðustu áramót. Í þremur þessara 18 tilvika hefur fagráðinu borist fleiri en ein ásökun á hendur sama aðila. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, telur eðlilegt að víkja fólki úr starfi á meðan mál þess er skoðað. „Það er mjög óeðlilegt að fólk sem sakað er um kynferðisbrot, og rökstuddur grunur er fyrir því, sé ekki sett í frí á meðan er verið að rannsaka málið," segir biskup. „En það má heldur ekki gleyma því að það eru til ásakanir sem koma fram án þess að fótur sé fyrir þeim."- sv / sjá síðu 6
Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Sjá meira