Segir Landsvirkjun ekki styðjast við rök 6. júlí 2012 06:00 Landsvirkjun hefur sótt um rannsóknarleyfi í Stóru-Laxá ofan Hrunakróks. Skili rannsóknir jákvæðum niðurstöðum gæti 25 til 30 megavatta virkjun orðið að veruleika. fréttablaðið/gva
Veiðimálastofnun segir fullyrðingar Landsvirkjunar um að aðstæður í Stóru-Laxá og Blöndu séu svipaðar ekki standast rök. Þá hafi rennslisbreytingar af mannavöldum nær undantekningarlaust skaðleg áhrif á lífríki og fiskgengd. Veiðimálastofnun gerir athugasemdir við fullyrðingar Landsvirkjunar um aðstæður í Stóru-Laxá og segir þær ekki styðjast við rök. Landsvirkjun hefur sótt um rannsóknarleyfi í Stóru-Laxá með 25 til 30 megavatta virkjun í huga. Í svari fyrirspurnar Fréttablaðsins, sem birt var í blaðinu á miðvikudag, segir að yrði af virkjun mundi rennsli árinnar jafnast og skilyrði fyrir laxfiska batna verulega, en miklar rennslissveiflur hafi mjög neikvæð áhrif á seiðabúskap. Þá segir fyrirtækið áhrifin geta orðið svipuð og í Blöndu. Veiðimálastofnun sendi Fréttablaðinu athugasemd vegna þessara fullyrðinga og segir fullyrðingar um batnandi skilyrði vafasamar og rennslisbreytingar af manna völdum hafi nær undantekningarlaust neikvæð áhrif á lífríki, en stofnunin hefur fylgst með veiði í Stóru-Laxá um áratuga skeið og seiðaframleiðslu frá 1985. „Flóð er hluti af náttúrunni líka og svo er það nú oftar en ekki að þegar mannlegi þátturinn kemur inn og menn fara að miðla, þá fer það eftir þörfum rafmagnsframleiðslunnar, en ekki því að menn séu að herma eftir náttúrunni,“ segir Guðni Guðbergsson, sviðsstjóri hjá Veiðimálastofnun, í samtali við Fréttablaðið. Veiðimálastofnun segir óljóst við hvaða rannsóknir Landsvirkjun styðjist í ályktunum sínum. „Það að fullyrða að aðstæður í Stóru-Laxá og Blöndu séu sambærilegar á ekki á neinn hátt við rök að styðjast.“ Guðni segir aðstæður í ánum gjörólíkar. Blanda sé jökulá og megnið af grófari jökulleirnum setjist nú í lóninu og áin sé mun tærari en áður. Laxinn gangi því mun fyrr upp ána en fyrir virkjun. Það hafi hins vegar ekkert með aðstæður í Stóru-Laxá að gera, enda sé hún ekki jökulá, og því séu ályktanir Landsvirkjunar sérkennilegar. „Það sem stuðaði mig var það að þeir voru farnir að draga ályktanir um hver áhrifin yrðu á fiskstofn og lífríki í Stóru-Laxá, án þess að hafa neinar forsendur til þess,“ segir Guðni. „Almennt er það þannig að virkjanir hafa neikvæð áhrif, þó svo að það sé hægt að finna dæmi eins og í Blöndu – og sennilega Þjórsá líka – þar sem karakter árinnar breyttist og jökuláhrifin minnkuðu.“ kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Fleiri fréttir „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Sjá meira