Öryggi og verndun er höfuðatriði við Silfru 4. júlí 2012 06:30 Álfheiður Ingadóttir
Þingvallanefnd ákveður á næsta fundi hvort innheimtu umdeilds gjalds fyrir kafara í Silfru verði frestað til 1. september. Nefndarformaðurinn segir áríðandi að stýra aðgangi að gjánni til að vernda umhverfið og tryggja öryggi kafara. „Það er ekki hægt að fresta því að grípa til stýringar á umferðinni um Silfru,“ segir Álfheiður Ingadóttir, formaður Þingvallanefndar. Eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær gagnrýna ferðaþjónustufyrirtæki nýtt 750 króna gjald á þá sem stunda köfun og snork í gjánni Silfru. Þeim hafi komið á óvart þegar tilkynnt var með níu daga fyrirvara að gjaldið yrði lagt á frá og með 1. júlí. Álfheiður bendir á að 12. desember í fyrra hafi Þingvallanefnd ákveðið að bjóða út köfunarleyfi í Silfru frá 1. maí á þessu ári. Mjög ítarlegt samráð hafi verið við viðkomandi fyrirtæki og Ríkiskaup komið að málinu. „Ástæðan er öllum kunn: Þarna hafa á síðustu árum orðið mjög alvarleg slys, þar á meðal banaslys árið 2010. Helsta öryggisráðstöfunin er annars vegar að takmarka fjöldann sem er ofan í Silfru á hverjum tíma og hins vegar að ekki megi vera nema tiltekinn fjöldi sem kafar eða snorkar með hverjum leiðsögumanni,“ segir Álfheiður. Formaður Þingvallanefndar segir að við nánari skoðun hafi útboð á sérleyfum þó ekki staðist lög. Hins vegar sé heimilt að leggja á svokallað gestagjald, ámóta og gjald fyrir tjaldstæði og veiðileyfi. Ákveðið hafi verið að fara þá leið. Útreikningar hafi leitt til að gjaldið verði 750 krónur fyrir hverja heimsókn í gjána. Þjóðgarðsverði sé falið að vinna tímaskiptingar í samvinnu við fyrirtækin. „Þannig ættu fyrirtækin vissa tíma í Silfru en þyrftu ekki að fara í kappakstur austur til að reyna að vera fyrstir ofan í en ella láta sína viðskiptavini norpa á bakkanum og bíða,“ segir Álfheiður. Þingvallanefnd tekur á næstu dögum afstöðu til tillögu um að gjaldtökunni verði frestað til 1. september. „Mér finnst það ákveðin sanngirni, kúfurinn af þessari traffík yrði þá farinn,“ segir Álfheiður. Fyrirtækin vilja hins vegar geyma málið í eitt ár en Álfheiður telur það ekki koma til álita. „Við horfðum fyrst og fremst til þeirrar skyldu sem við höfum til að tryggja öryggi við Silfru og umhverfið sjálft. Það fer algerlega saman að stýra umferðinni við gjána og bæta aðstöðuna og það er það sem við munum gera,“ segir formaður Þingvallanefndar og bendir á að Silfra sé takmörkuð náttúrauðlind eins og margir fleiri staðir á Íslandi. Hún horfir út fyrir Þingvelli. „Við þurfum að koma okkur upp aðgangsstýringu að þessari takmörkuðu auðlind sem íslensk náttúra er. Ég geri mér vonir um að næsta vetur verði hægt að vinna að gerð slíkra reglna, eins og á Nýja-Sjálandi og víðar.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fleiri fréttir Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Sjá meira