Segja starfsöryggi sínu ógnað 3. júlí 2012 07:00 Reykjavíkurborg hefur nú hafið innritun á börnum fæddum í janúar 2011 í leikskóla. fréttablaðið/hörður
Reykjavíkurborg hefur nú ákveðið að hefja innritun barna sem eru fædd í janúar 2011 í leikskóla borgarinnar. „Þetta gæti sett strik í reikninginn hjá þeim dagforeldrum sem eru búnir að fylla hjá sér í öll pláss og vísa börnum annað. Sumir gætu endað með tvö, þrjú börn í staðinn fyrir fjögur, fimm,“ segir Bergljót Snorradóttir, einn forsvarsmanna Barnsins, samtaka dagforeldra í Reykjavík. Fyrir rúmri viku birtust fréttir af því að Reykjavíkurborg hygðist ekki innrita börn fædd árið 2011 í leikskóla á þessu ári. Þessi viðsnúningur kemur sér afar illa fyrir dagforeldra. „Það er komið fram við okkur eins og þetta sé hobbý hjá fólki. Það vantar algjörlega virðingu fyrir starfsframlagi okkar,“ segir Bergljót og bendir á að fólk í öðrum stéttum myndi varla sætta sig við álíka viðsnúning í vinnu. Bergljót segir tímasetninguna á tilkynningunni afleita. Flestir dagforeldrar taki sér sumarfrí í júlí. Það sé fyrirséð að mörgum dagforeldrum verði kippt úr fríinu með símtölum varðandi uppsagnir plássa. „Það er komin ofboðsleg kergja í dagforeldra og það hefur komið til tals að segja upp samstarfi við borgina. Núna verður farið í að skoða það mál alvarlega. Það er ekki hægt að vinna undir þessu. Starfsöryggi okkar er ekkert.“ - ktg
Mest lesið Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Innlent Hættulegt að lána lyf Innlent Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Innlent Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira