Brúnin er að lyftast á Íslendingum 8. júní 2012 07:00 Mælingar Capacent leiða í ljós að það hefur heldur birt yfir þjóðinni síðustu tvö ár. Sá hópur sem metur sig í mjög erfiðri stöðu hefur hins vegar ekki minnkað. Fréttablaðið/Pjetur
Íslendingar hafa orðið sífellt ánægðari með sinn hag síðustu misseri. Fleiri Íslendingar segjast dafna og færri eiga í basli en áður og þá hefur andleg líðan farið batnandi. Þetta leiðir ný könnun Capacent Gallup á líðan Íslendinga í ljós en Capacent hefur mælt stöðu og andlega líðan Íslendinga frá því í maí 2010. Þegar Capacent hóf að nota þessa mælikvarða töldu 52% Íslendinga sig eiga í basli í lífinu en 45% sögðust dafna. Á síðustu tveimur árum hefur þróunin hins vegar verið nokkuð stöðug í jákvæðari átt. Þannig töldu alls 67,4% Íslendinga sig dafna í nýjust mælingunni. Þá telja 29,0% sig eiga í basli. Aldrei hafa fleiri talið sig dafna og færri talið sig eiga í basli. Sá hópur Íslendinga sem er í erfiðastri stöðu hefur hins vegar ekki minnkað á þeim tveimur árum sem liðin eru frá því að Capacent hóf þessar mælingar. Telja 3,6% sig nú vera í þrengingum en hlutfallið var 3% í maí 2010. Spurð um andlega líðan sína kom í ljós að tæp 48% sögðust upplifa mikla hamingju en hafa litlar áhyggjur. Hefur það hlutfall ekki mælst hærra. Þá sögðust tæp 8% hafa miklar áhyggjur og upplifa litla hamingju en það er nálægt meðaltali mælinga síðustu tvö árin. - mþl
Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Veður Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Fleiri fréttir Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Sjá meira