Skip LÍÚ bundin við bryggju út vikuna 6. júní 2012 05:15 Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra, mætti á fund hjá Brimi í gær og skiptist á skoðunum við Guðmund Kristjánsson forstjóra. Skip LÍÚ verða við bryggju út vikuna en boðað hefur verið til fundar á morgun. Fréttablaðið/Pjetur
Útvegsmenn munu halda skipum við bryggju út vikuna. Boðað er til allsherjarsamstöðufundar útvegsmanna og starfsfólks í sjávarútvegi á morgun. Forstjóri Brims og sjávarútvegsráðherra skiptust á skoðunum á fundi í Reykjavík í gær. Fiskiskip aðildarfélaga Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) verða bundin við bryggju út vikuna eins og boðað hafði verið í mótmælaskyni við frumvörp stjórnvalda um veiðigjöld og stjórn fiskveiða. Stefnt er að því að halda stóran fund útvegsmanna og starfsfólks í sjávarútvegi á morgun. Hlynur Sigurðsson, upplýsingafulltrúi LÍÚ, segir í samtali við Fréttablaðið að um samstöðufund verði að ræða. „Þarna verður kallað eftir nánara samráði frá stjórnvöldum og lögð áhersla á að vandað verði til verka,“ segir Hlynur. Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra, mætti í gær til fundar sem Guðmundur Kristjánsson, forstjóri útvegsfyrirtækisins Brims, hafði boðað til með starfsfólki sínu þar sem rætt var um frumvörpin og áhrif þeirra á rekstur sjávarútvegsfyrirtækja. Guðmundur kynnti fyrst þau sjónarmið útvegsmanna að þau veiðigjöld sem gert væri ráð fyrir í frumvarpi stjórnarinnar myndu hafa skaðleg áhrif á rekstrargrundvöll útvegsfyrirtækja. Meðal annars myndi gjaldið draga kraft úr greininni, með tilliti til nýfjárfestinga, auk þess sem kerfið myndi grafa undan hagkvæmni þess að sækja ákveðnar tegundir. Þá taldi hann sýnt að veiðileyfagjaldið myndi koma til með að skerða kjör sjómanna. Guðmundur ítrekaði einnig það sjónarmið útvegsmanna að ekki hafi verið tekið tillit til annarra sjónarmiða. Hann sagði frumvörpin samin „af þröngum hópi fólks“ og að þau hefðu ekki fengið góða einkunn hjá umsagnaraðilum. „Samt á að þröngva þeim í gegnum þingið og við óttumst skaðann sem þau geta gert samfélaginu.“ Þá gagnrýndi Guðmundur einnig að í frumvarpinu um stjórn fiskveiða sé gert ráð fyrir því að um 30.000 þorskígildistonn fari í leigupotta, ráðherra til ráðstöfunar. Í máli sínu sagði Steingrímur að sannarlega hefði verið tekið tillit til mismunandi sjónarmiða við gerð frumvarpanna. Það sæist gjörla á þeim breytingum sem hefðu orðið á fyrri frumvörpum og þeim breytingum sem veiðileyfafrumvarpið hefði tekið í meðförum þingsins. Hann sagði flest útvegsfyrirtæki vel geta ráðið við greiðslu veiðileyfagjalds og lagði einnig áherslu á að framlegð sjávarútvegsins í heild yrði jákvæðari nú, kæmu frumvörpin til framkvæmda, en hún hefði verið á árabilinu 2001 til 2008. Frá árinu 2008 hefði eigið fé útgerðarfyrirtækja farið úr því að vera neikvætt um 60 milljarða króna upp í að vera jákvætt um 160 milljarða. Steingrímur sagði spár benda til þess að framlegð útvegsfyrirtækja þetta ár yrði 78 milljarðar. Eftir að 15 milljarðar yrðu teknir í veiðigjöld væru enn eftir 63 milljarðar í fjármunamyndun í greininni. „Ef sjávarútvegurinn ræður ekki við það, hvernig lifði hann þá af árin 2002 til 2008?“thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt Innlent Hin 25 ára Silja Sóley oddviti Sósíalista í Reykjavík Innlent Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út Innlent Bílvelta í Ártúnsbrekku Innlent Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent Eins árs rannsókn lauk með ellefu handtökum á Íslandi Innlent „Farið að líkjast vöruúrvalinu í sovéskri kjörbúð“ Innlent Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Innlent Búið að ákæra og jafnvel dæma í tengdum málum Innlent „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Innlent Fleiri fréttir „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Úkraínumenn á Íslandi minntust Kjartans Sævars Lægðirnar nái ekki til landsins Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Stoltur yfir arfleifð Bryndísar Klöru en söknuðurinn sár Spila styrktarleik til minningar um Patrek: „Hans er sárt saknað“ Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Segja gögn um verktakagreiðslur tekin úr samhengi Innflutningi stýrt frá Litla-Hrauni Hefjast handa á rúmlega hundrað íbúðum fyrir fyrstu kaupendur Grikki grunaður um morð látinn dúsa tvær vikur til viðbótar Hættur við að fá dómkvadda matsmenn vegna varnargarða Bílvelta í Ártúnsbrekku Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út „Málþófsflokkarnir“ séu mættir „í fullum skrúða með leikrit og skuespil“ Ræða við vitni og hraðakstur til skoðunar Bein útsending: Færri börn undir þrettán ára á TikTok „Farið að líkjast vöruúrvalinu í sovéskri kjörbúð“ Sérhæfð móttaka Landspítala fær nafn Bryndísar Klöru Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt Búið að ákæra og jafnvel dæma í tengdum málum Hafi tekið barnsmóður sína hálstaki Fjöldahandtökur á Íslandi og prófessor varar við tengingu bóta við vísitölu Bein útsending: Einföldun Evrópuregluverks Eins árs rannsókn lauk með ellefu handtökum á Íslandi Nálgumst 400 þúsund og um átján prósent íbúa eru erlendir ríkisborgarar Alda sópaði manninum út í vatnið eftir að ís féll úr jöklinum Færri krakkar á samfélagsmiðlum en fleiri vingast við gervigreind Hin 25 ára Silja Sóley oddviti Sósíalista í Reykjavík Sjá meira