Skoðun

Kverkatak forsetans

Ástþór Magnússon skrifar
Ólafur Ragnar Grímsson þorir ekki að mæta mér og öðrum forsetaframbjóðendum í kappræður um málskotsrétt forseta á baráttudegi verkalýðsins 1. maí þar sem í tilefni dagsins átti einnig að velta upp þeirri spurningu hvort forsetinn geti með einhverjum hætti staðið vörð um hagsmuni almennings í endurreisninni.

Starfsstúlka Ólafs sendi það svar að hann vilji „sýna mótframbjóðendum sínum virðingu" með því að neita að mæta þeim á jafnréttisgrundvelli í kosningabaráttunni til að skilja kjarnann frá hisminu í umræðum um málskotsréttinn.

Með þessu sýnir Ólafur hins vegar lítilsvirðingu og heldur forsetakosningunum í gíslingu. Þótt Ólafi hafi tekist um tíma að blekkja þjóðina með lýðskrumi blekkir hann mig ekki.

Forsetinn sló sig til riddara með leikriti þar sem hann spilaði með málsskotsréttinn eftir eigin hentugleikum. Fyrst átta árum eftir að hann tók við embætti þegar kostunaraðilar framboðs hans (eigendur Norðurljósa-365 miðla) vildu með öllum ráðum stöðva fjölmiðlafrumvarpið. Stór mál m.a. Kárahnjúkar, öryrkjamálið og fyrstu Icesave-lögin fóru hins vegar í gegn með samþykki forseta.

Síðan eftir fimmtán ár í embætti þegar skoðanakannanir sýndu vaxandi óvinsældir Ólafs í kjölfar útrásarvíkingasmjaðursins þá greip hann til þess ráðs að nota aftur málskotsréttinn. Það gerði Ólafur í örvæntingafullri tilraun til að ná lýðhylli við nýju keisarafötin sín og hafði þetta lítið með hagsmuni þjóðarinnar að gera.

Á meðan erlendir vogunarsjóðir liggja eins og blóðsugur á bankakerfi landsmanna og soga til sín peninga, heimili og atvinnufyrirtæki galar forsetinn í útlöndum eftir afsökunarbeiðni afdankaðs stjórnmálamanns í Bretlandi í stað þess spyrna við yfirstandandi bankaráni frá Bessastöðum.

Ólafur Ragnar er tækifærissinni sem verður aldrei forseti fyrir neinn nema sjálfan sig sagði samstarfsmaður hans til margra ára, Steingrímur Hermannsson, fyrrum forsætisráðherra, við mig áður en lýðskrumarinn var kjörinn í embætti forseta Íslands árið 1996.

Nú er mál að Ólafur láti af því kverkataki sem hann er með á lýðræðinu, kveði niður sinn eigin Bessastaðadraug og þær kommúnísku hugsjónir sínar að sitja til eilífðarnóns á forsetastóli.

Farðu í friði Ólafur og gefðu þjóð þinni tækifæri til að velja sér nýjan forseta eftir lýðræðislegum leikreglum.




Skoðun

Sjá meira


×