Innlent

Risastórar "hamstrakúlur“ fyrir börn

BBI skrifar
Nýtt skemmtitæki fyrir börn var tekið í notkun í Fjölskyldugarðinum um helgina. Skemmtitækið minnir á hlaupakúlur fyrir ofvaxna hamstra.

Hinir svokölluðu Vatnsboltar eru svoleiðis hannaðir að börn geta skriðið inn í þá. Lofti er svo blásið í þá og síðan geta börnin hlaupið innan í þeim yfir vatnstjörnina í garðinum.

Tækið hefur fengið góðar undirtektir.

„Það var röð í allan dag," segir Haukur Hrafnsson sem sér um kúlurnar. „Boltarnir voru ekki með sekúndu hvíld á milli."

Ekkert aldurstakmark er í tækið sem er hugsað fyrir öll börn sem hafa hugrekki til að prófa. Hins vegar mega einstaklingar sem eru meira en 90 kíló ekki fara í það.

Í síðari hluta myndskeiðsins hér að ofan má sjá upptökur frá Fjölskyldugarðinum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×