Fordæmir árásir Ísraela á Gasa 15. nóvember 2012 06:00 Össur Skarphéðinsson „
Þetta eru váleg tíðindi,“ segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra um tugi árása sem Ísraelsmenn gerðu á Gasaströndina í Palestínu í gær. Yfirmaður herafla Hamas-samtakanna var meðal fallinna og þau hétu grimmilegum hefndum. „Ég fordæmi allar árásir af þessu tagi. Þær koma mér ekki alls kostar á óvart. Ég átti viðræður við fulltrúa Palestínumanna í Genf fyrr í vikunni þar sem þeir bókstaflega spáðu því að innan skamms mundu hefjast átök af þessu tagi,“ segir Össur. „Ég óttast að þarna sé verið að efna til mikilla og langvinnra átaka og verður auðvitað hugsað til hinna skelfilegu atburða í upphafi árs 2008 þegar Ísraelsmenn fóru með landhernaði á hendur íbúum Gasa. Ég tek eftir því að nú tala Ísraelsmenn líka í þá veru að líklega muni landhernaður fylgja í kjölfarið.“ Össur hefur gagnrýnt Ísraelsmenn harðlega á opinberum vettvangi fyrir framferði þeirra á Gasa. „Þetta undirstrikar það sem við Íslendingar, eftir okkar getu, höfum sagt á alþjóðavettvangi; að forsendan fyrir friði í þessum heimshluta sé að Ísraelsmenn gangi til samninga við Palestínumenn, sem þýðir að þeir verða að láta af landtökum sem þeir hafa stundað linnulítið.“- sh
Mest lesið Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Fleiri fréttir Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Sjá meira