Skiptar skoðanir í utanríkismálanefnd um framhald ESB-viðræðna Jón Hákon Halldórsson skrifar 22. maí 2012 15:17 Árni Þór Sigurðsson formaður utanríkismálanefndar vill ljúka við viðræður.
Árni Þór Sigurðsson formaður utanríkismálanefndar vill halda aðildarviðræðum við Evrópusambandið áfram. Kosið verði um aðild þegar samningur er til lykta leiddur. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmaður VG, lagði fram bókun á fundi utanríkismálanefndar í morgun þar sem hún fer fram á að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið fyrir lok þessa árs. Fréttastofa RÚV greindi frá því í dag að hugsanlega sé meirihluti í nefndinni fyrir þessari tillögu Guðfríðar, en þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins hafa gagnrýnt aðildarviðræðuferlið harðlega. „Menn hafa verið að lýsa skoðunum sínum í því efni en það er engin tillaga komin fram um það í nefndinni," segir Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis. Árni segir að ekkert nýtt sé í afstöðu Guðfríðar Lilju. Hún hafi lýst skoðunum sínum á aðild Íslands að Evrópusambandinu margsinnis. „Það hefur verið mín afstaða og er óbreytt ennþá að ég tel að greiða eigi atkvæði um svona afdrifarík mál mál þegar niðurstaða í viðræðunum liggur fyrir og það sé greidd atkvæði um samningsniðurstöðuna," segir Árni Þór. Ekki sé nægjanlegt að hafa lokið umfjöllun um einhverja tiltekna þætti. Árni Þór bendir á að þeir kaflar sem þegar sé búið að ljúka við í aðildarviðræðunum séu EES-kaflar og Schengen kaflar sem Íslendingar séu þegar aðilar að. Ekki sé farið að reyna á kafla eins og sjávarútveg, landbúnaðarmál, gjaldmiðlamál og fleiri kafla sem skipti máli. „Mér finnst orka tvímælis að fara í atkvæðagreiðslu um málið fyrr en það liggur fyrir," segir Árni Þór. Málinu sé ekki lokið fyrr en afstaða hafi verið tekin til þessara atriða.
Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Erlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Fleiri fréttir Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Sjá meira