Stuðningur við landbúnað er tvöfalt hærri hér á landi 2. október 2012 04:00 Samkvæmt spá OECD var heildarstuðningur við landbúnað á Íslandi 17,3 milljarðar árið 2011.
Ísland greiðir fimmta hæsta stuðning við landbúnað af OECD-löndunum. Noregur trónir á toppnum og Sviss, Kórea og Japan greiða öll hærri stuðning en Ísland. Þetta kemur fram í skýrslu OECD. Samkvæmt spá skýrsluhöfunda nemur árlegur heildarstuðningur ríkisins við landbúnað á árunum 2009 til 2011 16,7 milljörðum króna, eða 1,1% af vergri þjóðarframleiðslu. Er þar átt við beingreiðslur og innflutningsvernd. Spá OECD fyrir árið 2011 gerir ráð fyrir 17,3 milljarða króna stuðningi við landbúnað. Dregið hefur úr stuðningi við bændur um þrjátíu prósentustig á milli áranna 1986-88 og 2009-11. Hins vegar hefur lítil stefnubreyting verið í málaflokknum á þessum árum, að sögn skýrsluhöfunda. Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, segir tölurnar fyrir 2011 gefa nokkuð rétta mynd af stöðunni, en síðustu ár hafi myndin verið brengluð vegna gengisskekkju. Ljóst sé að stuðningur við landbúnað verði alltaf hærri hér en víða annars staðar. „Hann verður alltaf hár hér af því að við erum með svo fábreyttan landbúnað. Önnur ríki geta smurt þessu út á fleiri búgreinar.“ Haraldur bendir á að Ísland nýti ekki heimildir sínar varðandi tollvernd að fullu. Heildarheimildir séu á bilinu 20 til 24 milljarðar, en um sex milljarðar séu nýttir fyrir árið 2011. „Við höfum haft af því áhyggjur að tollvernd sé að rýrna, því ef tollvernd rýrnar þá rýrna kjör bændanna.“ Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að stofnunin hafi ekki lagt mat á heildarstuðning við landbúnað. Hún hafi lagt áherslu á að stuðningi sé hagað þannig að hvatar samkeppninnar séu nýttir til að styrkja greinina og auðvelda nýjum aðilum að vaxa og dafna á markaðnum. Á það skorti.- kóp
Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Drengurinn kominn heim til sín Innlent Fleiri fréttir Bilun í Herjólfi Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Sjá meira