Meirihluti fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu vegna ESB-aðildar Karen Kjartansdóttir skrifar 22. maí 2012 19:00
Nýr meirihluti myndaðist í morgun í utanríkismálanefnd fyrir því að vísa umsókn um aðild að ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir áramót. Málið mun hafa komið viðkvæmri sátt í fleiri málum milli stjórnarflokkanna í algjört uppnám. Á fundi utanríkismálanefndar í morgun bókaði Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmaður vinstri grænna: "Hið brýna úrlausnarefni sem við blasir er ekki áframhaldandi aðlögun Íslands að ESB heldur upplýst þjóðfélagsumræða í aðdraganda almennrar atkvæðagreiðslu þar sem þjóðin fær að svara þeirri spurningu hvort hún vilji ganga inn í ESB. Efna þarf til slíkrar þjóðaratkvæðagreiðslu hið fyrsta - fyrir lok þessa árs - og hvet ég til þverpólitískrar samstöðu um að svo geti orðið." Fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks bókuðu síðan stuðning við þessa tillögu Guðfríðar Lilju. En bæði formaður þingflokks sjálfstæðismanna og formaður Framsóknarflokksins íhuga að leggja fram þingsályktunartillögu um málið. Þá mun þingið þurfa að greiða atkvæði um bókun Guðfríðar. "Það er eflaust einsdæmi að meirihluti utanríkismálanefndar í ríki, sem er í aðildarumsóknarferli að Evrópusambandinu, álykti með þessum hætti. Nú er þetta ekki ályktun nýs meirihluta en með þessari bókun, Guðfríðar Lilju, er ljóst að það er komin nýr meirihluti í nefndinni sem er samþykkur eða sammála um að setja þetta mál í dóm þjóðarinnar áður en lengra er haldið," segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. "Það er auðvitað mjög sérstakt að meirihluti utanríkismálanefndar þings sem er að sækja um aðild að Evrópusambandinu sé ekki hlynnt umsókninni það hlýtur að hafa einhver áhrif á það hvernig Evrópusambandið lítur á þetta," segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. Fulltrúar Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í utanríkismálanefnd hafa lagt til að utanríkisráðherra komi á fund nefndarinnar til að fara yfir málið og Alþingi taki það í framhaldinu til umfjöllunar. Heimildir fréttastofu herma að þingmenn innan Samfylkingarinnar séu æfir vegna bókunar Guðfríðar Lilju. Þetta sé líklegt til að að hafa áhrif á fleiri mál á þingi sem viðkvæm sátt hefur verið um milli stjórnarflokkanna svo sem rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Fleiri fréttir Metfjöldi í Hlíðarfjalli á stórafmæli Andrésar Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Sjá meira