Grófu 150 fjár upp úr snjó 1. október 2012 11:56
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra skipulagði nú um helgina umfangsmiklar aðgerðir, í samvinnu við Slysavarnafélagið Landsbjörgu, búnaðarráðunauta, bændur og aðrar hlutaðeigandi. Í tilkynningu frá almannavörnum segir að aðgerðirnar beindust að því að gera lokaátak við að finna sauðfé sem hafði hrakist og grafist í snjó í óveðrinu sem gekk yfir landið 9. og 10. september síðastliðinn. Ríkisstjórnin veitt fjármunum í verkefnið til að þetta væri framkvæmanlegt. Yfir hundrað björgunarsveitarmenn aðstoðuðu fjölda bænda við leit og smölun allt frá Húnavatnssýslum í vestri og austur í Kelduhverfi. Við aðgerðirnar voru notaðir fjöldi björgunarsveitarbíla, fjór- og sexshjól, vélsleðar, snjóbílar, þyrla Landhelgisgæslunnar auk flugvéla í einkaeigu. Aðgerðirnar gengu vel og var um 150 lifandi fjár grafið uppúr snjó og auk þess fundust og var komið til byggða miklum fjölda fjár sem hrakist hafði undan veðrinu. Fjöldi fjár fannst einnig dautt. Vel gekk að koma lifandi fé til byggða og lauk skipulögðum aðgerðum í ljósaskiptunum í gærkvöldi. Nú á næstu dögum mun koma í ljós hversu margt fé hefur ekki skilað sér og þá verður hægt að fara að gera grein fyrir því tjóni sem bændur hafa orðið fyrir. Með þessu átaki lauk skipulagðri leit og björgun sauðfjár en bændur munu áfram svipast um eftir fé eftir því sem aðstæður leyfa. Það fé sem fannst á lífi grafið í snjó nú þrem vikum eftir óveðrið var margt í ágætu ástandi en inná milli var töluvert um veikburða fé. Ríkislögreglustjóri þakkar þeim fjölmörgu sem hafa komið að aðgerðunum á síðustu vikum.
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fleiri fréttir Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Það er ekkert bjart yfir okkur akkúrat í dag“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjá meira