Hundrað mál á borði lögreglu í nótt 8. júlí 2012 09:19
Tvær líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu í nótt. Í öðru tilfellinu var maður skorinn með brotinni flösku utan við skemmtistað í miðborginni og hlaust af þó nokkur blæðing. Talið er að upphaf megi rekja til ágreinings inni á staðnum milli aðila sem endaði með fyrrgreindum afleiðingum. Þá var maður slegin í höfuð með glasi á dansgólfi á skemmtistað í Reykjavík og hlaut hann við það skurði í andlit og á hendi. Í báðum tilfellum voru aðilar fluttir með sjúkrabifreiðum á slysadeild Landspítalans en ekki er um alvarlega áverka að ræða. Málin eru til rannsóknar hjá lögreglu. Tilkynnt var um vopnaða konu fyrir utan skemmtistað í miðborginni. Hún var sögð vera með hótanir í garð dyravarða. Fram kom að hún væri með piparúða, hníf og kylfu. Konan fannst skömmu síðar en þá fannst stálkylfa í handtösku hennar. Í viðræðum við varðstjóra viðurkenndi konan að hafa verið með hníf skömmu áður en lögreglu bar að garði. Hún sagðist hafa tapað honum á hlaupum en kutanum hafði hún fundið geymslustað milli brjósta sinna. Hún tók fram að hann hefði tollað illa þar og ítrekað sigið niður á maga og því fór sem fór. Það kom konunni, sem var nokkuð ölvuð, á óvart að slíkur vopnaburður væri óheimill og að hún yrði kærð fyrir að hafa umrædda kylfu í fórum sínum. Þá voru þrír teknir fyrir ölvun við akstur í nótt á höfuðborgarsvæðinu. Nítján ára gömul stúlka var svipt ökuréttindum á fimmta tímanum í nótt. Hún mældist á 107 kílómetra hraða á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirðir. Hámarkshraði á veginum er 50 kílómetrar á klukkustund. Maður á þrítugsaldri var tekinn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá var 18 ára gömul stúlka einnig tekin fyrir að aka yfir leyfilegum hámarkshraða. Öll munu þau eiga von á háum sektum og ökuleyfisviptingu. Nærri 100 mál voru skráð og afgreidd hjá lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu í nótt. Telst það í meðallagi.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Fleiri fréttir Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Sjá meira