Innlent

Lögreglumenn börðust við eldsvoða

Lögreglumenn. Myndin er úr safni.
Lögreglumenn. Myndin er úr safni.
Þeir voru snarir í snúningi lögreglumennirnir á Akranesi sem komu að eldi í húsnæði á Vesturgötu á Akranesi í síðustu viku. Þegar lögreglu bar að logaði eldur í rafmagnsdós í lofti húsnæðisins. Lögreglumönnunum tókst þá að halda eldinum í skefjum með handslökkvitæki þar til slökkviliðið kom á vettvang.

Rjúfa þurfti loftið sem var einangrað með pappír og torfi til þess að komast að öllum glæðum og slökkva. Í tilkynningu frá lögreglu segir að það sé ljóst að þarna hefði getað farið mun verr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×