Skondið ef drottningin héti Díana árið 2100 3. desember 2012 21:17 "
Það hljóta að vera gleðitíðindi í hverri fjölskyldu að von sé á nýju lífi. Í þessu tilviki nær gleðin þó væntanlega vel út fyrir innsta hring ættmenna, ekki síst til bresku pressunnar", segir Hildur Helga Sigurðardóttir, fyrrverandi fréttaritari RÚV á Bretlandseyjum, innt eftir viðbrögðum við fréttinni um væntanlegan erfingja Vilhjálms Bretaprins og Katrínar konu hans. Það féll oft í hlut Hildar Helgu að flytja fréttir af dramatískum atburðum í lífi Elísabetar Englandsdrottningar og fjölskyldu hennar, sem oft lét nokkuð illa að stjórn hennar hátignar. Þau Hildur Helga og Svavar Örn lýstu brúðkaupi Vilhjálms og Katrínar í beinni útsendingu á Stöð 2 í fyrrasumar. „Þessi ungu hjón virðast nú gera allt eftir bókinni og hafa nú uppfyllt sína helstu skyldu, að fjölga sér. Það er sjálfu sér heldur fátt um svona frétt að segja, nema hvað það væri nú svolítið skemmtilegt ef barnið yrði stúlka og þau skírðu hana Díönu. Miðað við langlífið í þessarri fjölskyldu og að því gefnu að konungsveldið verði enn við lýði á næstu öld, þá væri það skondið tilbrigði við allt sem á undan er gengið, ef drottning með því nafni settist í hásætið upp úr aldamótunum 2100", segir Hildur Helga. „Díana heitin spáði því að sjálf yrði hún aldrei drottning og mörgum þótti eiginmanni hennar og tengdaforeldrum ekki farnast sérlega vel við hana", bætir Hildur Helga við. „En sá hlær best sem síðast hlær". En til að þetta gengi eftir, að drottningin myndi heita Díana, þyrfti að breyta reglum um ríkiserfðir, því eins og lögin eru nú þá gengur karlkynið alltaf fyrir. „Þeir hafa að minnsta kosti hundrað ár til þess," segir Hildur Helga að lokum.
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira