Vigdís Finnbogadóttir las fyrir börnin 6. desember 2012 10:32
Börn skilja ekki fjölda orða sem notuð voru í daglegu tali á seinnihluta síðustu aldar og foreldrar þeirra eru aldir upp við. Orð á borð við að skæla og mæla og ýmis máltæki, eins og að sitja við sinn keip, eru hægt og rólega að hverfa úr daglegu máli. Þetta segir Vigdís Finnbogadóttir, verndari Barnaheilla - Save the Children á Íslandi, sem las fyrir börn á 140 ára afmæli Eymundsson verslananna á dögunum. Hún ræddi meðal annars við fullorðna fólkið um mikilvægi þess að kynna ungu kynslóðina fyrir þeim orðum sem eru í barnasögum á borð við Búkollu og Hans Klaufa. Staða íslensku barnabókarinnar er í brennidepli á 140 ára afmælinu. Á þessu ári hafa verið gefnar út um 300 barnabækur en einungis lítill hluti þeirra er eftir íslenska höfunda, megnið eru þýddar barnabækur. Eymundsson verslanirnar styrktu Barnaheill - save the Children á Íslandi á afmælisdeginum með því að láta allan ágóða af sölu barnabóka renna til samtakanna. Þema nóvembermánaðar út frá barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í nóvember var 28. greinin sem fjallar um rétt allra barna til menntunar. Lestur er afar mikilvægur í því tilliti. Bryndís Loftsdóttir, bóksali hjá Eymundsson, telur að koma þurfi til stuðningur við íslenskra höfunda og myndskreyta til að fá réttara hlutfall af íslenskri menningu í barnabókmenntir, sérstaklega þegar kemur að yngstu börnunum. „Okkur vantar alveg íslenska sveitabæi, íslenska lögreglubíla, íslenskan mat eins og slátur og kjötsúpu inn í íslenskar barnabækur, en þegar kemur að unglingabókum er hlutfallið orðið réttara." Vigdís fagnar tækniframförum og þeirri tækni sem býður upp á bækur á rafrænu formi: „Við þurfum að fylgjast með tímanum, hverja stund að fylgjast með því sem er að gerast annars staðar í heiminum. Þetta náttúrulega auðveldar mikið allt aðgengi að lesefni og öllu efni sem framleitt er, en ekki vil ég samt missa bókina úr hendinni, því það kemur ekkert í staðinn fyrir það að halda á fallegri bók og fara hægt frá síðu til síðu án þess að þurfa að ýta á takka."
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira