Björgunarskip þurfa klössun 6. desember 2012 07:00 Björgunarskip við störf Einar Sigurjónsson, skip Björgunarfélags Hafnarfjarðar, er eitt fjórtán skipa sem Landsbjörg hefur á sínum snærum. fréttablaðið/vilhelm
Lögð hefur verið fram á Alþingi ályktun um að fela innanríkisráðherra að gera samkomulag við Slysavarnafélagið Landsbjörg um endurbætur og viðhald björgunarskipa félagsins fyrir árin 2014 til 2021. Eins að fela ráðherra að kanna þörf og möguleika á að fá enn öflugri skip á tiltekna staði á landinu, en skipin eru nú fjórtán talsins. Flutningsmenn tillögunnar telja eðlilegt að samkomulagið feli í sér fjárframlag af hálfu ríkissjóðs að upphæð 30 milljónir króna hvert samningsár, miðað við verðlag ársins 2012, eða um 250 milljónir á samningstímanum. Er þá ekki talinn kostnaður við nýsmíði. Flest skip, sem Slysavarnafélagið Landsbjörg notar í dag, eru svokölluð ARUN-björgunarskip sem eru talin mjög örugg og hafa reynst afar vel við íslenskar aðstæður. Þessi skip voru keypt notuð af Konunglega breska sjóbjörgunarfélaginu í mjög góðu ásigkomulagi. Skipin höfðu reglulega farið í skipulagt viðhald en nú er svo komið að tvö til þrjú skip þurfa nauðsynlega á slíkri klössun að halda. Að auki þarf að endurnýja eitt skip að fullu. Í greinargerð segir að búast megi við að öll önnur skip í björgunarskipaflotanum þurfi jafnframt áþekka klössun á næsta áratug, auk þess sem gera verður gangskör í því að endurnýja tæki og búnað í samræmi við þróun í siglinga- og leiðsögutækjabúnaði síðustu ára. Gott ástand skipanna gefur tilefni til að álykta að þau endist önnur 15 ár hið minnsta, og því hagkvæmt að leggja í kostnað við viðhald þeirra sem gæti numið 20 til 30 milljónum á skip, auk skatta. Kostnaður við nýsmíði á einu skipi, samsvarandi og eru hér nú, er metinn á bilinu 350 til 400 milljónir króna, samkvæmt greinargerðinni. Aðrir sem Fréttablaðið ræddi við telja það vanmat. Hörður Már Harðarson, formaður Landsbjargar, segir verkefnið aðkallandi. „Skipin eru gömul og þurfa endurnýjunar við. Þetta hefur verið í skoðun í nokkur ár og mikilvægt að þetta sé sett af stað. Þetta er tiltölulega umfangsmikið verkefni enda þurfa skip stöðugt viðhald - og það á ekki síst við um björgunartæki eins og þessi.“ Ljóst er að þörfin fyrir björgunarskipin er mikil en á árinu 2010 voru 76 útköll skráð á landsvísu eða um fimm á hvert skip. Þetta eru eingöngu útköll þar sem hætta eða vá var talin vera fyrir hendi. Þar að auki sinna bjögunarskipin ótal öðrum verkefnum og æfingum, meðal annars með þyrlum og varðskipum Landhelgisgæslunnar. Hörður segir að á fundi forsvarsmanna allra björgunarbátasjóðanna út um land nýlega, hafi verið rætt um að fækka skipum eða finna leiðir til að halda þeim gangandi. Niðurstaðan var að halda öllum skipunum úti en sætta sig við minna fé til rekstursins. Um þörfina til að þétta net bátanna segir Hörður ljóst að með strandveiðunum hafi þörfin fyrir björgunarskipin aukist; ekki síst við Vesturland og Vestfirði. Hugsanlegt sé í því samhengi að skip verði færð til, þó engin niðurstaða liggi fyrir um slíkt. Eins sé net bátanna kannski ekki nægilega þétt á Austurlandi, en þá þurfi til þess að hugsa að á bak við hvern bát þarf mannskap. „Bátarnir eru reknir af sjálfboðaliðum og áhugi og mannskapur þarf að vera til staðar, enda er það töluverð útgerð að reka svona skip. Þetta er miklu meira en að segja það,“ segir Hörður. „En fyrir okkur er það spurning um framtíð þessarar útgerðar að við fáum stuðning til lengri tíma litið, svo hægt sé að skipuleggja starfið fram í tímann.“ Þingmenn fjögurra flokka standa að ályktuninni. Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Björn Valur Gíslason, Vinstri grænum, Gunnar Bragi Sveinsson, Framsóknarflokki, og Oddný G. Harðardóttir, Samfylkingu. Tillagan hefur efnislega verið lögð fram í tvígang áður, á árunum 2007-2009. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Erlent Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Erlent Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Erlent Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Innlent Mannfallið að nálgast tvær milljónir Erlent Afneitun helfararinnar verði gerð refsiverð og fræðsla aukin Innlent Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Erlent Rúmlega tvöhundruð skjálftar við Lambafell í Þrengslum Innlent Höfðu afskipti af „trylltum“ manni og ofurölvi útlendingi Innlent Fleiri fréttir Nær altjón í iðnaðarhúsnæði eftir bruna á Húsavík Guðrún svarar fyrir gömul ummæli um aðildarviðræður að ESB Afneitun helfararinnar verði gerð refsiverð og fræðsla aukin Rúmlega tvöhundruð skjálftar við Lambafell í Þrengslum Höfðu afskipti af „trylltum“ manni og ofurölvi útlendingi Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Púðurtunnan Vestanhafs, þandar taugar og hörð lending Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Borgarfulltrúi fer ekki aftur fram og hættir í Pírötum Ekki hægt að fullyrða að andlát hafi tengst Covid-19 bólusetningu „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Kynna einn frambjóðanda á dag næstu daga Ekki skrýtið að eitthvað bresti vegna álags á framlínustarfsmenn Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Verkalýðshreyfingin úti á túni með sitt tal? Mál rússnesku fjölskyldunnar: Króatía sé talið öruggt land Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Heiða tekur annað sætið í Reykjavík Meiri hveralykt af vatninu vegna viðhalds og viðgerðar Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Heiða hefur ekki heldur svarað uppstillingarnefnd Helga Kristín gengur til liðs við Miðflokkinn Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Stefnir í hallarekstur og uppsagnir hjá Stígamótum „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Þingfundi ekki frestað vegna handboltans Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Sjá meira