Innlent

Flateyringar þurfa að aka 22 kílómetra til þess að komast í banka

Flateyri.
Flateyri.
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar mótmælir harðlega þeirri ákvörðun Landsbankans að loka útibúum sínum á Bíldudal, Króksfjarðarnesi, Flateyri og í Súðavík að því er fréttavefurinn bb.is greinir frá.

„Enn og aftur er vegið að grunnstoðum veikari samfélaga í kringum landið og er það gert í nafni samfélagslegrar ábyrgðar hjá bankanum. Í tilviki íbúa á Flateyri þurfa þeir að aka ríflega 22 km aðra leiðina til að eiga bankaviðskipti.

Mikill fjöldi íbúa á Flateyri eru erlendir ríkisborgarar og ljóst að þeir þurfa í auknum mæli að taka sér leyfi úr vinnu til að sinna sínum bankaviðskiptum og margir eldri borgarar á staðnum hafa hreinlega engin úrræði," segir í fundarbókun sem samþykkt var samhljóða.

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar skorar á stjórnvöld að grípa til aðgerða til að verja þjónustu við íbúana, í nafni alvöru samfélagslegrar ábyrgðar, ef ríkisbankinn Landsbankinn endurskoðar ekki þessa ákvörðun sína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×