Innlent

Jóhanna kemur heim í fyrramálið

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, tók þátt í leiðtogafundi Eystrasaltsráðsins sem lauk í dag í Stralsund í Þýskalandi. Aðildarríki Eystrasaltsráðsins eru Norðurlöndin fimm, Eistland, Lettland, Litháen, Rússland, Pólland og Þýskaland auk þess sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins á aðild að ráðinu.

Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að ráðherrar landanna hafi rætt annars vegar um orkumál og orkuöryggi á svæðinu og hinsvegar um áhrif lýðfræðilegra breytinga í ríkjunum - þar sem meðal aldur fer hækkandi og sífellt stærri hluti þjóðanna nær lífeyrisaldri, jafnframt því sem barneignum fækkar.

Samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðuneytinu hefur Steingrímur J. Sigfússon, ráðherra atvinnumála, verið starfandi forsætisráðherra í fjarveru Jóhönnu. Gert er ráð fyrir að hún komi heim í fyrramálið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×