Innlent

Vilja gjörbreyta samfélaginu

Húmanistaflokkurinn hyggst bjóða fram til Alþingis.
Húmanistaflokkurinn hyggst bjóða fram til Alþingis.
Húmanistaflokkurinn kynnti stefnumál sín á blaðamannafundi í gær, en flokkurinn hyggst bjóða fram í öllum kjördæmum landsins til næstu Alþingiskosninga. Eitt helsta stefnumál flokksins eru lýðræðisumbætur. Þá vilja Húmanistar að fjármálakerfið verði undir stjórn ríkisins ásamt því að ríkið ákvarði magn peninga í umferð.

„Ég held að hrunið og sú stefna sem hefur verið hér í gangi undanfarin ár hafi ekki staðið undir væntingum. Það hefur orsakað að fólk er orðið mjög opið fyrir öðru," sagði Júlíus Valdimarsson, einn forsvarsmanna flokksins. - ktg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×